Fengu engar upplýsingar þrátt fyrir tafir 17. júlí 2011 19:09
Farþegar Iceland Express fengu litlar sem engar upplýsingar meðan þeir biðu í einn og hálfan sólarhring eftir að flug þeirra frá París til Keflavíkur færi í loftið. Forstjóri fyrirtækisins ætlar að reyna bæta farþegum tjónið. Það var klukkan hálf tvö í nótt sem að leiguflugvél á vegum Finnair lenti með farþega Iceland Express á Keflavíkurflugvelli, einum og hálfum sólarhring eftir áætlun. Ástæða seinkunarinnar var að vél Iceland Express bilaði og erfiðlega gekk að fá aðra vél og áhöfn í staðinn. Farþegar þurftu að bíða klukkustundum saman á flugvellinum án nokkurra upplýsinga. „Það voru engin samskipti við Iceland Express. Við fórum að reyna að hringja í þá í svokallað neyðarnúmer, það var bara stundum svarað. Síðan hringdum við í skiptiborðið og þar var maður númer 19 og 28 þannig einu upplýsingarnar sem við fengum voru af starfsmönnum þegar fólk fór að leita og fann einhverja á flugvellinum og spurði hvað er að gerast, af hverju fáum við ekki að vita neitt?" spyr Óli Barðdal, einn farþeganna. Farþegar fengu loks gistingu á hóteli í fyrrinótt en þar var þeim raðað fjórum saman á herbergi sama hvort þeir þekktust eða ekki. Þegar komið var um borð í leiguflugvélina seint í gærkvöld kom síðan í ljós að einungis nokkrar vatnsflöskur voru um borð. Margir erlendir ferðamenn voru með fluginu og voru þeir að vonum ósáttir með upphafið á Íslandsheimsókn sinni. Matthías Imsland forstjóri Iceland Express segir marga hluti hafa farið úrskeiðis í París þar sem samstarfsaðilar félagsins hafi ekki sinnt sínu hlutverki í upplýsingagjöf og þjónustu við farþega vélarinnar. „Ég satt að segja og við hjá Iceland Express erum hálf slegin yfir því sem að við höfum heyrt og við ætlum að reyna að bæta farþegum þetta eins og hægt er og jafnframt skoða verkferla og jafnvel endurskoða samstarfið við þessa aðila úti í Frakklandi," segir Matthías. „Það eru allir í vélinni búnir að segja aldrei Iceland Express aftur. Það er stundum erfitt að segja aldrei þar sem maður veit ekki hvað gerist á morgun, en í dag ætla ég aldrei að gera það aftur," segir Óli Barðdal.
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Sjá meira