Barnið krufið í fyrramálið - atburðarásin farin að skýrast Andri Ólafsson skrifar 3. júlí 2011 18:30
Tuttugu og eins árs gömul litháísk kona var í dag úrskurðuð í tveggja vikna gæsluvarðhald vegna. Hún er grunuð um að hafa komið nýfæddu barni sínu fyrir í ruslagámi þar sem það fannst látið um miðjan dag í gær. Konan verður einnig sett í geðrannsókn. Fyrrverandi kærasti hennar, sem handtekinn var í gær, var hins vegar látinn laus seinni partinn í dag. Atbuðarásin sem leiddi til þessa hömulega atviks er nú tekin að skýrast. Konan mætti til vinnu sinnar á Hótel Fróni, þar sem hún er herbergisþerna, í gærmorgun klukkan átta. Hún sinnti venjubundnum störfum, ásamt samstarfsfélögum sínum, þangað til klukkan fór að ganga tíu, en þá tóku herbergisþernurnar sér kaffihlé. Konan afsakaði sig hins vegar og fór afsíðis. Fimmtán mínútum síðar kom hún fram, kvartaði undan tíðarverkjum, og hringdi í fyrrverandi kærasta sinn, sem er líka frá Litháen, en þau hættu nýlega að búa saman. Samstarfsfélagarnir tóku ekki eftir neinu óeðlilegu. Kærastinn kom og sótti konuna en ók henni skömmu síðar á spítala þar sem að hún var hún með blæðingar og kviðverki. Við skoðun urðu læknar þess fljótlega fullvissir að konan hefði fætt barn þá skömmu áður eða á síðasta sólarhring. Lögreglan var þá látin vita. Enginn, hvorki vinir konunnar né aðstandendur, virðast hafa vitað að hún hafi verið með barni. Ekki hafi það heldur sést á henni. Nú er talið konan hafi fætt barnið inni á einu hótelherberginu um morgunin á meðan samstarfsfélagar hennar tóku sér kaffipásu. Því herbergi hefur nú verið lokað af lögreglu á meðan það er til rannsóknar. Barnið mun hafa fæðst lifandi, það verður krufið í fyrramálið og þá kemur í ljós hvort það hafi enn verið á lífi þegar því var komið fyrir í ruslageymslunni fyrir utan hótelið þar sem það fannst látið nokkrum klukkustundum síðar. Samstarfsfélagar konunnar segja að hún hafi verið dugleg og brosmild, hún var búinn að vinna á hótelinu í fjóra mánuði. Starfsfólkinu þar var á starfsmannafundi í dag boðin áfallahjálp. Margir er slegnir vegna málsins og var blómum meðal annars komið fyrir utan hótelið í dag Á kortinu er orðsending til barnsins sem fannst látið. „Þú áttir betra skilið", stendur þar, „hvíl í friði".
Mest lesið Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Erlent „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Innlent Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Innlent Birtu ekki baulið Erlent Flutningabílar fastir á Þröskuldum Innlent Fleiri fréttir Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð Sjá meira