Vildi milljónir í miskabætur - kyrrsetning olli hugarangri 10. júní 2011 15:30 Skarphéðinn Berg.
Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði ríkið, Tollstjóra og Skattrannsóknarstjóra ríkisins af skaðabótakröfu Skarphéðins Bergs Steinarssyni, fyrrverandi stjórnarformanns FL Group. Skarphéðinn krafðist fimm milljóna króna í miskabætur og vildi annað eins í skaðabætur vegna kyrrsetningar á eignum hans sem hann þurfti að þola vegna rannsóknar á skattamálum FL Group. Það var hinn 11. nóvember 2008 sem Skattrannsóknarstjóri ríkisins hóf rannsókn á bókhaldi og skattskilum Baugs Group hf., nú Stoða hf., vegna rekstrartímabilsins 2005 til og með desember 2007. Skarphéðinn hlaut þá stöðu grunaðs manns og samþykkti Sýslumaðurinn í Reykjavík að kyrrsetja eignirnar. Héraðsdómur hnekkti þeim úrskurði síðar. Skattrannsóknarstjóri ríkisins var sýknaður af kröfu Skarphéðins vegna aðildarskorts, enda var það sýslumaðurinn sem samþykkti kyrrsetninguna. Krafan um miskabætur Skarphéðins byggðist á því að kyrrsetningargerðin hefði valdið honum hugarangri og mikið álag hafi verið á fjölskyldu hans vegna málsins. Skaðabótakrafan byggðist á því að Skarphéðinn hefði orðið fyrir ólögmætri meingerð af hálfu stofnannanna vegna umfjöllunar um málið í fjölmiðlum sem Skarphéðinn telur stofnanirnar bera ábyrgð á. Dómurinn fellst ekki á þessi rök. Í niðurstöðunni segir að ekki sé fallist á að í beiðni um kyrrsetningu á eignum Skarphéðins hefðu falið í sér brot á skaðabótareglum eða í því hefði falist ólögmæt meingerð gegn persónu Skarphéðins. Heldur hafi, þrátt fyrir niðurstöðu kyrrsetningarmálsins, verið um að ræða eðlilegan þátt í þeirri rannsókn sem enn stendur yfir og er ekki lokið. Þá er með öllu ósannað að starfsmenn stofnannanna hefðu lekið upplýsingum til fjölmiðla eða átt þátt í því að frétt um kyrrsetninguna hafi borist til fjölmiðla í aðdraganda hennar. Þess má geta að málskostnaður fellur niður.
Mest lesið Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Robinson hafi lýst eftirsjá Erlent Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Innlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Innlent ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Innlent Fleiri fréttir Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Sjá meira