Reykjavíkurborg heiðrar Bríeti 16. júní 2011 12:58 Sóley Tómasdóttir lagði til að borgarstjórn myndi heiðra minningu baráttukvenna fyrir kvenfrelsi þann 19. júní ár hvert
Forseti borgarstjórnar, Elsa Hrafnhildur Yeoman, mun leggja blómsveig á leiði Bríetar Bjarnhéðinsdóttur, kvenréttindakonu og bæjarfulltrúa, í Hólavallakirkjugarði til að heiðra minningu baráttukvenna fyrir kvenfrelsi á Kvenréttindadaginn þann 19. júní. Þetta er í fyrsta sinn sem borgin heiðrar Bríeti á þennan hátt og er það gert í samræmi við tillögu sem Sóley Tómasdóttir, oddviti Vinstri grænna í borgarstjórn, lagði fram á síðasta ári. Bríet Bjarnhéðinsdóttir átti ríkan þátt í að koma á réttarbótum konum til handa og var í hópi fyrstu kvenna sem tóku sæti í bæjarstjórn Reykjavíkur árið 1908. Athöfnin hefst klukkan 14:30. Að lokinni athöfn verður gengið fylktu liði á Hallveigarstaði þar sem Kvenfélagasamband Íslands og fleiri kvennasamtök verða með hátíðardagskrá og kaffiveitingar í tilefni dagsins.Tillaga borgarráðsfulltrúa Vinstri grænna sem var samþykkt á síðasta ári:Borgarráð samþykkir að heiðra minningu baráttukvenna fyrir kvenfrelsi þann 19. júníár hvert frá og með næsta ári. Forsætisnefnd verði falið að útfæra hátíðarhöldin ísamráði við mannréttindaráð.Greinargerð með tillögunni:Þann 19. júní 1908 fengu giftar konur kosningarétt og kjörgengi í Reykjavík ogHafnarfirði og öðluðust þar með sjálfstæði frá eiginmönnum sínum til pólítískrarþátttöku, en ekkjur og ógiftar konur höfðu þá haft kosningarétt í um aldarfjórðung.Tveimur árum síðar fengu konur í öðrum sveitarfélögum sömu réttindi.Kosningaréttur og kjörgengi eru grundvallaratriði í lýðræðissamfélagi. Það var þvímikill sigur fyrir lýðræðið þegar íslenskar konur öðluðust sjálfstæðan rétt til pólítískra skoðana, en sigurinn var ekki síður kvennapólítískur, þar sem konur voru þar meðleystar undan forræði eiginmanna sinna.Borgarstjórn Reykjavíkur heiðrar minningu Jóns Sigurðssonar á ári hverju fyrirómetanlegt starf hans í þágu sjálfstæðis þjóðarinnar. Vel mætti hugsa sér að heiðra minningu Bríetar Bjarnhéðinsdóttur með svipuðum hætti, enda átti hún ríkan þátt í að koma á réttarbótum konum til handa og efla þannig lýðræðissamfélagið í heild sinni. Það er þó ekki eina leiðin sem hægt er að fara og því brýnt að forsætisnefnd fari yfir málið og útfæri hátíðarhöld sem hæfa þessum merkisdegi í sögu þjóðarinnar.
Mest lesið Kölluð út á efsta forgangi þegar tveir féllu útbyrðis Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Innlent Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi Innlent Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Innlent Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Innlent Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Innlent Fleiri fréttir Kölluð út á efsta forgangi þegar tveir féllu útbyrðis Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Sjá meira