Takmarka á setu forseta Íslands við þrjú kjörtímabil 3. júní 2011 11:33 Ólafur Ragnar Grímsson varð forseti árið 1996 og er nú á fjórða kjörtímabili sínu
B-nefnd stjórnlagaráðs kynnir í dag tillögur sínar um forseta Íslands. Samkvæmt þeim er lagt til að setutími forseta takmarkist við þrjú kjörtímabil. Ekki hefur enn verið tekin afstaða til málskotsréttar forseta, hvort hann haldi heimild sinni eður ei og þá með hvaða hætti. Í tillögunum kemur fram að mikilvægt sé að lýsa í stjórnarskránni með skýrum orðum ábyrgð og völdum hvers fyrir sig eins og þau eru í raun og veru þannig að stjórnarskrá sé gegnsæ og skiljanleg. Einhugur er í nefnd B um að forsetinn hafi menningarlegt hlutverk og sé verndari ýmissa gilda. Í samræmi við framangreint miða tillögur B-nefndar við að ,,lepporðalag" um hlutverk ráðherra og forseta sé afnumið en af því leiðir að ekki verði talað um að forseti framkvæmi tiltekna stjórnarathöfn þegar það sé í reynd ráðherra sem það geri og beri lagalega og pólitíska ábyrgð á athöfninni. Því er m.a. lagt til að 13., 18. og 19. greinar núverandi stjórnarskrár, séu felldar brott ásamt öðrum ákvæðum. Þá eru lagðar til breytingar á forsetakjöri og meðmælendafjölda, þannig að forseti verði kosinn með hreinum meirihluta. B-nefnd leggur einnig fram tillögur til afgreiðslu inn í áfangaskjal um störf Alþingis sem kynntar voru í síðustu viku þar sem meðal annars er kveðið er á um takmörkun á setutíma ráðherra, að Alþingi kjósi forsætisráðherra sem ákveði síðan skipan ráðuneyta og tölu ráðherra og að leggja megi fram á Alþingi tillögu um vantraust á forsætisráðherra eða aðra ráðherra. 11. fundur stjórnlagaráðs hófst klukkan tíu í morgun. Auk embættis forseta lýðveldisins, verða þar til umræðu trúmál og utanrikismál.
Mest lesið Margföld aðsókn í vökvagjöf: „Fólk er ekkert að gera þetta að gamni sínu“ Innlent Sendur til Íslands eftir þrætu um persónuupplýsingar innflytjenda Erlent Stórfelld líkamsárás og ráðist á dyravörð Innlent Kínverskt skip stórskemmt eftir árekstur við tundurspilli Erlent Einn látinn og tíu slasaðir eftir stóra sprengingu Erlent Albanese segir Netanyahu í afneitun Erlent Ákvörðun Trump valdabrölt: „Það á eftir að verða meira svona“ Erlent Tilfelli alvarlegrar ókyrrðar gætu tvöfaldast vegna loftslagsbreytinga Innlent „Þetta er í rauninni þreifingafundur“ Erlent Leiðtogar Evrópu ítreka sjálfsákvörðunarrétt Úkraínumanna Erlent Fleiri fréttir Stórfelld líkamsárás og ráðist á dyravörð Margföld aðsókn í vökvagjöf: „Fólk er ekkert að gera þetta að gamni sínu“ Tilfelli alvarlegrar ókyrrðar gætu tvöfaldast vegna loftslagsbreytinga Óvenjuleg ákvörðun, holskefla kvartana og ókyrrð Upphaflegasta útgáfa Snorra-Eddu snýr heim eftir fjögurra alda útlegð Einnota plastvörur fái sérstaka merkingu „Sannarlega ekki eitthvað sem ég ætlaði að taka þátt í“ Stytta opnunartíma Seltjarnarneslaugar: „Er þetta það sem við viljum spara í?“ Ókyrrð að aukast en lítil hætta á ferðum Komu ferðamönnum í sjálfsheldu á Búlandstindi til aðstoðar Fylla í skörð reynslubolta Þurfti rannsóknarvinnu til að finna upplýsingar um bílastæðarukkun „Alvarlegar afleiðingar“ verði greiðsluþátttöku hætt Bráðabirgðaheimild veitt fyrir Hvammsvirkjun Fer í þrjú útköll á dag: Sprenging í útköllum vegna veggjalúsar „Ef við værum nasistar þá værum við ekki að skipta um kross“ Bílastæðamál, POTS, ókyrrð og íslenski hesturinn Engin byssa reyndist vera í bílnum Strætisvagnar rákust saman við Borgartún Hinn látni bandarískur ferðamaður á sextugsaldri Svara til saka eftir tvær vikur Dásamar ÁTVR og skýtur á lögreglustjóra Virkjanir í Skagafirði úr vernd í bið en Urriðafoss í nýtingu Meira að segja happ þegar frystihúsið brann Nýtt skilti komið upp og rauða ljósið mun loga oftar Tíu metra djúp hola í ísnum á vinsælli gönguleið „Eins og það væri verið að segja mér að ég ætti tvo mánuði eftir ólifað“ Tveir á sjúkrahús eftir rafskútuslys Missir mikilvægrar meðferðar, óánægja í Ísrael og sundkappinn sem tefst Leiðtogar Norðurlanda og Eystrasaltsins: Engin friður án aðkomu Úkraínu“ Sjá meira