Hemmi Hreiðars söng Hjálpaðu mér upp á Næsta bar SB skrifar 5. júní 2011 13:08 Hermann Hreiðarsson sló í gegn á Næsta bar.
Landsliðsmaðurinn Hermann Hreiðarsson tók tapinu gegn Dönum létt og brá sér í hlutverk trúbadors á Næsta bar í gærkvöldi. Hápunktur sönglagasyrpu Hermanns var þegar hann söng lagið Hjálpaðu mér upp eftir Ný dönsk. Íslenska landsliðið beið lægri hlut fyrir Dönum í gær og brugðust menn misjafnlega við úrslitunum. Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari strunsaði út af blaðamannafundi, er hann var spurður út í stöðu sína hjá liðinu. En aðrir létu enn eitt tapið gegn Dönum ekki stöðva sig í að kanna næturlíf Reykjavíkurborgar. Atvinnumaðurinn Hermann Hreiðarsson vakti mikla athygli á Næsta bar í Reykjavík en hann tók gítar með sér og hélt uppi stuðinu með félögum sínum. Ýmsum fannst þó lagavalið örlítið kaldhæðnislegt en hápunktur kvöldsins var þegar Hermann kyrjaði lagið Hjálpaðu mér upp. Lokalag kvöldsins var Lífið er yndislegt sem Hreimur í Landi og sonum gerði frægt á Þjóðhátíð í eyjum. Texta lagsins þekkja flestir og var það mál manna að lagið ætti kannski ekki svo illa við - í ljósi enn eins tapleiks Hermanns og félaga í landsliðinu. Hér er texti lagsins í heild sinni: Hjálpaðu mér upp, ég get það ekki sjálfur ég er orðinn leiður á að liggja hér. Gerum eitthvað gott, gerum það saman, ég skal láta fara lítið fyrir mér. viðlag Hjálpaðu mér upp mér finnst ég vera að drukkna. Hjálpaðu mér upp mér finnst ég vera að drukkna. Hjálpaðu mér upp mér finnst ég vera að drukkna. Hvað getum við gert, ef aðrir bjóða betur dregið okkur saman og skriðið inní skelina. Nei það er ekki hægt, að vera minni maður og láta slíkt og annað eins spyrjast út um sig. viðlag Þú! Þú getur miklu betur en þú hefur gert. Þú! Þú ert ekki sami maður og þú varst í gær. Þú! Þú opnar ekki augun fyrr en allt of seint opnar ekki augun fyrr en allt er breytt. Hjálpaðu mér upp mér finnst ég vera að drukkna, drukkna í öllu þessu í kringum mig. Flýtum okkur hægt, gerum það í snatri. Ég verð að láta fara lítið fyrir mér.
Mest lesið Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Lífið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Fleiri fréttir Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Sjá meira