Áralangri baráttu fyrir austurrísku leiðinni að ljúka 6. júní 2011 14:19 Kolbrún leggur áherslu á nauðsyn þess að löggjafinn vinni málið þannig að aðgengilegt verði fyrir löggæsluyfirvöld að koma þessu ákvæði í framkvæmd. „
Auðvitað fagna ég því að þetta sé vonandi að komast á endapunkt," segir Kolbrún Halldórsdóttir um afgreiðslu allsherjarnefndar á frumvarpi um hina svonefndu austurrísku leið. Þegar Kolbrún sat á Alþingi lagði hún ítrekað fram frumvarp þess efnis en aldrei komst það í gegn. Hún sér því nú fyrir lok áralangrar baráttu fyrir því að lögregla fái heimild til að fjarlægja ofbeldismenn af heimili sínu, í stað þess að brotaþoli þurfi að flýja. Stór hluti þeirra kvenna sem dvelst í Kvennaathvarfinu er þar eftir að hafa flúið ofbeldismanninn og þar með heimili sitt. Eftir mikla fjölgun kvennaathvarfa var farin sú leið að fjarlægja ofbeldismanninn af heimilinu í stað þess að brotaþoli þurfi að flýja, og hefur þessi leið því verið kölluð austurríska leiðin í þeim löndum sem síðar tóku hana upp. Kolbrún leggur áherslu á nauðsyn þess að löggjafinn vinni málið þannig að aðgengilegt verði fyrir löggæsluyfirvöld að koma þessu ákvæði í framkvæmd. „Ákvæði um refsingar við klámi og nauðgunum sem eiga að vernda fólk gegn kynferðisofbeldi hafa ekki virkað, og hefur löggæslan borið því við að löggjafinn hafi útfært reglurnar svo illa að erfitt sé að fara eftir þeim. Ég vona að þetta verði ekki eitt af þeim dæmum. Markmiðið er jú að koma í veg fyrir ofbeldið," segir Kolbrún. Hún viðurkennir að það sé mikið inngrip í líf gerandans að fjarlægja hann af eigin heimili. „Austurríska leiðin er skref í rétta átt. Þetta er alvarlegt inngrip í líf gerandans, í líf ofbeldismannsins, en svo virðist sem lög og reglur þurfi að taka á gerandanum til að þau hafi áhrif. Aðgerðirnar þurfa að brenna á hans skinni," segir Kolbrún.
Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Innlent Robinson hafi lýst eftirsjá Erlent Fleiri fréttir Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Sjá meira