Stórmynd Scotts tekin á Íslandi 8. júní 2011 09:15 Charlize Theron hlaut Óskarsverðlaunin árið 2003 fyrir leik sinn í kvikmyndinni Monster og var tilnefnd til sömu verðlauna tveimur árum seinna. Theron er meðal skærustu stjarna Hollywood en hún hefur leikið í kvikmyndum á borð við Hancock, The Italian Job og The Devil´s Advocate. Mynd/AFP
Stórmyndin Prometheus eftir Ridley Scott verður að hluta til tekin upp hér á landi í næsta mánuði. Óskarsverðlaunaleikkonan Charlize Theron og er væntanleg til landsins til að leika í myndinni en tökurnar standa yfir í um viku. Umfangið verður svipað og þegar tökur á kvikmyndinni Lara Croft fóru fram við Jökulsárlón fyrir rúmum áratug en alls munu 350 starfsmenn koma að þessu verkefni. Meðal annarra stórstjarna sem fylgja tökuliðinu hingað til lands má nefna ástralska leikarann Guy Pearce, sem er frægastur fyrir leik sinn í Memento, L.A. Confidential og King´s Speech. Þá má fastlega gera ráð fyrir því að hin sænska Noomi Rapace endurnýi kynni sín við Ísland. Rapace þreytti frumraun sína fyrir framan tökuvélarnar í íslensku víkingamyndinni Í skugga hrafnsins eftir Hrafn Gunnlaugsson fyrir þrettán árum. Hún sló svo í gegn í Millennium-þríleiknum eftir bókum Stiegs Larsson. Framleiðslustjóri myndarinnar, Sam Breckman, hefur hreiðrað um sig á skrifstofu framleiðslufyrirtækisins True North, sem hefur veg og vanda af tökunum hér á landi. Breckman er mikill reynslubolti í Hollywood og vann meðal annars með Chris Nolan þegar hann tók upp nokkrar senur fyrir Batman Begins við rætur Svínafellsjökuls árið 2005. Starfsfólk True North er hins vegar þögult sem gröfin og Leifur Dagfinnsson, framleiðandi hjá True North, vildi ekkert tjá sig við Fréttablaðið þegar eftir því var leitað. - fgg
Mest lesið Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent Robinson hafi lýst eftirsjá Erlent Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Innlent Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Innlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Innlent Fleiri fréttir Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Sjá meira