Þingmaður Sjálfstæðisflokksins: Það gengur friðarspillir laus á Alþingi 8. júní 2011 18:37
Stjórnarandstaðan sakaði forsætisráðherra á Alþingi í dag um að koma í veg fyrir að sátt næðist um minna kvótafrumvarp ríkisstjórnarinnar. Málið var afgreitt með miklum ágreiningi úr sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd í morgun. Minna kvótafrumvarp ríkisstjórnar tók umtalverðum breytingum þegar það afgreitt úr sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd í morgun. Fulltrúar stjórnarandstöðunnar gagnrýndu hins vegar málsmeðferðina harðlega og telja að frumvarpið sé meingallað „Það var verið að rífa þetta mál út þrátt fyrir að engin efnisleg umræða hefði farið fram um málið á vettvangi sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar," segir Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Stjórnarandstaðan sakaði forsætisráðherra um að koma í veg fyrir að sátt næðist um málið. „Það gengur friðarspillir hér laus á Alþingi, ég fullyrði það virðulegi forseti, í þessu máli eins og mörgum öðrum og það er forsætisráðherra Íslands sem ég er að tala um," sagði Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. „Kergjan í forsætisráðherra og stoltið hjá hæstvirtum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra er að sprengja allt vinnulag á þingi í loft upp," sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. „Mér finnst það löðurmannlegt af háttvirtum þingmönnum stjórnarandstöðunnar að koma hingað og ráðast að hæstvirtum forsætisráðherra fjarstöddum með þeim hætti sem þeir gera hér," sagði Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra. „Það voru lagðar fram tillögur til sátta í síðustu viku og aftur í þessari viku og ég taldi og meirihluti nefndarinnar að lengra væri ekki komist," sagði Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður VG. Samkvæmt dagskrá á síðasti þingfundur fyrir sumarfrí að vera á morgun en margt bendir þó til þess að sú áætlun muni ekki standast. Ríkisstjórnin vill klára kvótafrumvarpið fyrir frí en stjórnarandstaðan hótar hins vegar að beita málþófi. Forseti Alþingis hefur fundað með forystumönnum þingflokka í dag til að ná sátt um málið - hingað til án árangurs.
Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Innlent Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Innlent Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Innlent „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Innlent Fleiri fréttir Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Viðbrögð við sláandi PISA-könnun Ísland sé með rauða spjaldið í námsárangri barna „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Sjá meira