Opnar pylsuvagn við Hvalfjarðargöngin á morgun Erla Hlynsdóttir skrifar 9. júní 2011 11:30 Pylsuvagninn ásamt fyrri eiganda sínum
Pylsuvagn verður formlega opnaður við Hvalfjarðargöngin klukkan tólf á morgun. „Þá dreg ég upp og verð til klukkan átta," segir Arnþór Gylfi Árnason, pylsuáhugamaður með meiru. Pylsubíllinn verður staðsettur á plani við þjóðveg 1, rúma hundrað metra frá hringtorginu við nyrðri muna Hvalfjarðarganganna. „Þetta er staður þar sem margir stoppa til að rétta úr sér. Nú getur fólk stoppað og fengið sér pulsu eða almennilegt kaffi," segir Arnþór. Í pylsuvagninum, eða pylsubílnum réttara sagt, verður einnig boðið upp á það helsta sem fæst í almennri vegasjoppu, svo sem sælgæti, gos og ís.Planið er við þjóðveg 1, við nyrðri muna Hvalfjarðarganganna„Ég er búinn að prufukeyra hann, búinn að mæta á planið og selja pulsur. Það gekk bara vel," segir Arnþór. Sumir viðskiptavinanna vissu að fyrirhugað var að opna þarna pylsuvagn en öðrum kom það skemmtilega á óvart að fá rjúkandi pylsu við Hvalfjörðinn. Arnþór er bæði búinn að mæta til prufu um helgi og á virkum dögum, og segir hann söluna hafa verið ívið meiri um helgina. Pylsuvagninn verður opinn alla daga milli klukkan tólf á hádegi, til klukkan átta um kvöld. Þegar fram dregur stefnir hann á að vera einnig með miðnæturopnun, sér í lagi um helgar, og hafa þá jafnvel opið frá ellefu til þrjú. „Það er oft ótrúlega mikil umferð þarna á þessum tíma," segir Arnþór sem er búsettur í Borgarnesi og er öllum hnútum kunnugur í nágrenninu. Þar sem stundum vill gusta um planið sem pylsuvagninn verður á hefur hann þegar sett sig í samband við listamann sem er að útbúa listaverk til að hafa þar, og þjónar verkið þá einnig því hlutverki að skýla viðskiptavinum fyrir vindum. Arnþór vill þó ekkert gefa meira upp um listaverkið. „Það er leyndarmál," segir hann.Aðstaðan inni í pylsuvagninumSamkvæmt aðalskipulagi hefur Olíuverzlun Íslands hf. allan rétt til þjónustustarfsemi á svæðinu næstu áratugina, en Gylfi hefur samið við fyrirtækið um reksturinn. Þá hefur hann þegar fengið leyfi frá öllum öðrum sem þessu við koma, svo sem Hvalfjarðarsveit, Vegagerðinni og heilbrigðiseftirlitinu.
Tengdar fréttir Opnar pylsuvagn við Hvalfjarðargöngin "Ég er pylsuáhugamaður í grunninn þó ég hafi starfað við ýmislegt annað," segir Arnþór Gylfi Árnason sem opnar pylsuvagn, eða réttara sagt pylsubíl, við Hvalfjarðargöngin síðar í þessum mánuði. Gylfi er búsettur í Borgarnesi og rekur ferðaþjónustufyrirtækið Tourist Online ehf. sem hefur fengið leyfi til að selja pylsur við göngin. "Mér finnst þessi staðsetning mjög góð. Ég starfa í ferðamannabransanum og þessi staður er gáttin inn á Vesturland," segir Gylfi. Pylsubíllinn verður staðsettur á plani við þjóðveg 1, rúma hundrað metra frá hringtorginu við nyrðri muna Hvalfjarðarganganna. Samkvæmt aðalskipulagi hefur Olíuverzlun Íslands hf. allan rétt til þjónustustarfsemi á svæðinu næstu áratugina, en Arnþór hefur samið við fyrirtækið um reksturinn. Þá hefur hann þegar fengið leyfi frá öllum öðrum sem þessu við koma, svo sem Hvalfjarðarsveit, Vegagerðinni og heilbrigðiseftirlitinu. "Þetta er bara allt að verða klárt," segir Arnþór. Í pylsubílnum verða einnig hægt að kaupa kaffi og aðrar veitingar. "Fyrst og fremst verða þetta samt pylsur. Því Íslendingar borða pylsur. Alltaf!" segir Arnþór. Hann stefnir sjálfur á að afgreiða reglulega í pylsubílnum þó hann komi einnig til með að ráða til sín starfsfólk. Síðan segir hann aldrei að vita nema reksturinn komi til með að stækka ef viðskiptin blómstra við þjóðveginn. 4. maí 2011 08:58 Mest lesið Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent Robinson hafi lýst eftirsjá Erlent Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Innlent Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Innlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Innlent Fleiri fréttir Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Sjá meira
Opnar pylsuvagn við Hvalfjarðargöngin "Ég er pylsuáhugamaður í grunninn þó ég hafi starfað við ýmislegt annað," segir Arnþór Gylfi Árnason sem opnar pylsuvagn, eða réttara sagt pylsubíl, við Hvalfjarðargöngin síðar í þessum mánuði. Gylfi er búsettur í Borgarnesi og rekur ferðaþjónustufyrirtækið Tourist Online ehf. sem hefur fengið leyfi til að selja pylsur við göngin. "Mér finnst þessi staðsetning mjög góð. Ég starfa í ferðamannabransanum og þessi staður er gáttin inn á Vesturland," segir Gylfi. Pylsubíllinn verður staðsettur á plani við þjóðveg 1, rúma hundrað metra frá hringtorginu við nyrðri muna Hvalfjarðarganganna. Samkvæmt aðalskipulagi hefur Olíuverzlun Íslands hf. allan rétt til þjónustustarfsemi á svæðinu næstu áratugina, en Arnþór hefur samið við fyrirtækið um reksturinn. Þá hefur hann þegar fengið leyfi frá öllum öðrum sem þessu við koma, svo sem Hvalfjarðarsveit, Vegagerðinni og heilbrigðiseftirlitinu. "Þetta er bara allt að verða klárt," segir Arnþór. Í pylsubílnum verða einnig hægt að kaupa kaffi og aðrar veitingar. "Fyrst og fremst verða þetta samt pylsur. Því Íslendingar borða pylsur. Alltaf!" segir Arnþór. Hann stefnir sjálfur á að afgreiða reglulega í pylsubílnum þó hann komi einnig til með að ráða til sín starfsfólk. Síðan segir hann aldrei að vita nema reksturinn komi til með að stækka ef viðskiptin blómstra við þjóðveginn. 4. maí 2011 08:58