11 þúsund krefjast úrbóta fyrir börn sem verða vitni að heimilisofbeldi 30. maí 2011 13:28 Barnaheill afhentu Jóni Gnarr undirskriftirnar í morgun
Barnaheill - Save the Children á Íslandi afhentu í dag Jóni Gnarr, borgarstjóra Reykjavíkur, undirskriftir tæplega 11000 einstaklinga þar sem þeir skora á yfirvöld að tryggja börnum, sem eru vitni að heimilisofbeldi, tilhlýðilegan stuðning. Rannsókn samtakanna sem kynnt var febrúar leiddi í ljós að þessum börnum standa ekki nægileg úrræði til boða af hálfu félagslega kerfisins í Reykjavík. Skortur virðist á samráði milli þeirra stofnana, sem að þessum málaflokk koma, þegar börn eru annars vegar. Misbrestur er á að rætt sé við börn og líðan þeirra metin og tæplega helmingi heimilisofbeldismála, sem tilkynnt eru til barnaverndar, lýkur með bréfi til þolanda ofbeldisins, oftast móður, með almennum upplýsingum um úrræði en án frekari eftirfylgdar. Rannsóknin var kynnt um miðjan febrúar en í kjölfar hennar fóru Barnaheill - Save the Children á Íslandi í vitundarvakningu um málefni barna, sem eru vitni að ofbeldi á heimilum sínum. Auka þarf vitund um að synir og dætur þolenda, oftast kvenna, sem verða fyrir ofbeldi af hálfu maka, eru einnig fórnarlömb ofbeldisins. Liður í þeirri vitundarvakningu var undirskriftasöfnun á netinu. Í mars sl. voru velferðarráðherra afhentar þær undirskriftir sem þá höfðu safnast en nú þegar undirskriftasöfnun er formlega lokið hafa 10980 einstaklingar skrifað undir áskorun til stjórnvalda um bætt úrræði til handa börnum í þessum aðstæðum. Talið er að minnst 2000 börn verði á ári hverju vitni að ofbeldi gegn móður eða ofbeldi á milli foreldra á heimilum sínum, en þær tölur eru ekki áreiðanlegar og að mati Barnaheilla - Save the Children er hér um falið vandamál að ræða. Þegar litið er yfir það verklag sem tíðkast í Reykjavík í málum af þessum toga má segja að flestir líti svo á að með því að tilkynna um mál til barnaverndar sé tryggt að börn sem eru vitni að heimilisofbeldi fái þann stuðning og öryggi sem þau þurfa. En í raun og veru er gap á milli þeirra væntinga sem viðmælendur hafa til barnaverndar og þess hvernig barnavernd tekur og getur tekið á málum. Í félagslega kerfinu virðist ekki vera skimað sérstaklega eftir því hvort börn eru vitni að heimilisofbeldi né lagt markvisst mat á líðan þeirra svo hægt sé að veita þeim viðeigandi aðstoð. Í dag er í boði eitt hópúrræði á vegum Barnaverndarstofu fyrir börn sem verið hafa vitni að heimilisofbeldi. Skilyrði fyrir þátttöku í þeirri meðferð er að ofbeldi sé ekki lengur til staðar á heimili, barnið sé eldra en fimm ára og tali íslensku.
Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent „Það er mikið verið að suða“ Innlent Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira