Bjöllukonsert þingforseta: Höskuldur með hellu 30. maí 2011 15:30 „
Ég held að vinnueftirlitið ætti að koma hingað, ég er búinn að vera með hellu í eyrum síðan í morgun," segir Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, sem lenti í harðri rimmu við Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, forseta þingsins, í morgun. Höskuldur tók til máls undir liðnum fundarstjórn, þar sem fundarstjórn forseta er eingöngu til umræðu. Þegar Höskuldur vék orðum að svörum iðnaðarráðherra í ræðu sinni, byrjaði Ásta Ragnheiðu að slá í bjölluna af krafti, svo miklum raunar, að Höskuldur heyrir ekkert með öðru eyranu. Sjálfur ætlaði hann að óska eftir því að þingforseti beindi þeim tilmælum til ráðherra um að svara honum málefnalega, en Höskuldur sagði iðnaðarráðherra hafa veist að sér með fúkyrðaflaumi. Ekki vildi betur til en að honum var vísað úr ræðustóli af þingforseta. „Mér finnst ég vera órétti beittur," segir Höskuldur sem bætir við: „Það er orðið áhyggjuefni að hún sé að missa stjórn á skapi sínu með þessum hætti og þá skiptir engu hvort stjórnarandstaðan eða meirihluti talar." Höskuldur vill meina að reglur séu aðrar nú en þær voru fyrir tíð Ástu. Hann segir það í raun eðlilegra að þingforseti tjái sig um ræðu þingmanna eftir að þeir hafa talað, en ræðutíminn undir þessum lið er aðeins ein mínúta. „Ég held að þessi nýja tilhögun á fundarstjórn eigi stóran þátt í að virðing Alþingis sé afar lítil og bendi á að það eru fullt af aðilum í forsætisnefnd sem sitja við fundarstjórn án þess að svona lagað gerist," segir Höskuldur. Höskuldur segir hávaðann í bjöllunni slíkan að vinnueftirlitið þyrfti að koma niður á Alþingi og hávaðamæla vinnustaðinn.
Tengdar fréttir Forseti þingsins rak þingmann úr ræðustóli Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, var rekinn úr fundarstóli í morgun þegar rætt var um fundarstjórn forseta. Höskuldur ætlaði þá að svara Katrínu Júlíusdóttur iðnaðarráðherra sem áður hafði verið í óundirbúnum fyrirspurnum, en hann sætti sig ekki við þau svör sem hann hafði fengið frá ráðherranum, um framkvæmdir á Bakka. 30. maí 2011 14:49 Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Innlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Fleiri fréttir Hvorki ákærðu né brotaþoli könnuðust við fíkniefnabrask Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Sjá meira
Forseti þingsins rak þingmann úr ræðustóli Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, var rekinn úr fundarstóli í morgun þegar rætt var um fundarstjórn forseta. Höskuldur ætlaði þá að svara Katrínu Júlíusdóttur iðnaðarráðherra sem áður hafði verið í óundirbúnum fyrirspurnum, en hann sætti sig ekki við þau svör sem hann hafði fengið frá ráðherranum, um framkvæmdir á Bakka. 30. maí 2011 14:49