Formaður ÖBÍ segir erfiðara að komast á bætur 28. maí 2011 13:35 Guðmundur Magnússon, formaður Öryrkjabandalags Íslands.
Formaður Öryrkjabandalags Íslands segir að Tryggingastofnun haldi fastar um budduna þegar kemur að greiðslum til öryrkja og mun erfiðara sé að komast á bætur núna áður. Öryrkjum fjölgaði mun hægar í fyrra en árin á undan. Öryrkjum fjölgaði um tvö hundruð á síðasta ári, eða um 1,4 prósent og er það mun hægari fjölgun en árin á undan, en öryrkjum hefur fjölgað um fjögur til átta hundruð á ári um langt skeið, að því er fram kemur í Fréttablaðinu. Fjölgun í fyrra er þvert á allar spár um mikla fjölgun öryrkja í kjölfar efnahagshrunsins og aukins atvinnuleysis. Skýringuna má finna í aðgerðum stjórnvalda undanfarin ár, að sögn Sigríðar Lillýjar Baldursdóttur, forstjóra Tryggingastofnunar. Stjórnvöld hafi gripið til margvíslegra úrræða til þess að tryggja betur endurhæfingu og virkni í kjölfar atvinnumissis og heilsubrests. Fjöldi öryrkja var 14.714 hér á landi í desember síðastliðnum. Konur voru í meirihluta, eða 9.025. Sigríður Lillý segir að hjá Tryggingastofnun hafi öll vinnubrögð verið endurskoðuð varðandi endurhæfingarmat, virk endurhæfingarúrræði og örorkumat að fengnum lagabreytingum sem gerði stofnuninni kleift. Guðmundur Magnússon, formaður Öryrkjabandalags Íslands, segir að mun erfiðara sé að komast á bætur nú en áður. Ríkið haldi mun fastar utan um öll útgjöld til þessa málaflokks. „Það er mjög erfitt að komast inn á örorkulífeyri. Ég held að haldið fast utan um budduna hjá Tryggingastofnun og það er allt orðið þrengra og erfiðara. Það er spurning hvort það sé ekki fólk þarna úti sem þyrfti að vera (á bótum) en er það ekki. Ég hef grun um það." Guðmundur segir að fjölgun þeirra sem þurfi að sækja sér aðstoð til hjálparstofnana haldist hugsanlega í hendur við að færri njóti örorkubóta. Guðmundur segir að erfitt sé fyrir öryrkja að sækja bótaflokka sem þeir áttu áður rétt á. „Það er svona verið að þrengja allar túlkanir mjög," segir Guðmundur.
Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglinn í Þýskalandi Erlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent „Það er mikið verið að suða“ Innlent Fleiri fréttir Regnbogafánar, jafnaðargeð og valkyrjuvá í Hafnarfirði Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Sjá meira