Rúmt eitt tonn af ösku var í sundlauginni á Kirkjubæjarklaustri 28. maí 2011 18:45
Lítil ummerki eru um eldsumbrot í Grímsvötnum og líkur á að gosið sé að fjara út. Gosstrókurinn náði í um eins komma fimm kílómetra hæð í gær, en lítil aska var í honum. Hreinsunarstörfum á öskusvæðunum fer nú senn að ljúka en þar hefur fjöldi fólks unnið ötullega síðustu daga. Það er allt annað að sjá Kirkjubæjarklaustur nú en þegar aska umlukti bæinn og nærsveitir hans fyrir nokkrum dögum. Slökkviliðsmenn kláruðu að spúla af húsum og bæjum á öskusvæðinu í gær og var þörfin mikil líkt og sést á þessum myndum, en vatnið sem nýtt var til verksins skipti fleiri hundruðum tonna. Íbúar voru skiljanlega himinlifandi með útkomuna. „Ég hef ekki séð þetta svona hreint lengi því ef það er ekki aska þá er það Skaftárleir og það er sitt lítið af hverju og Skeiðarársandur á flögri af og til þannig að það er fínt að fá svona sparihús," segir Ingibjörn Eiríksdóttir íbúi á Túngötu. Sundlaugin á Kirkjubæjarklaustri hefur einnig verið tekin í gegn og skartar hún nú sínu fegursta. Verkefnið var þó ærið. „Það þurfti fötur og skóflur og hjólbörur til að keyra það út. Ég held að það hafi verið rúmt tonn sem þeir mokuðu upp úr," segir Ólafur Ingi Jónsson, björgunarsveitarmaður. Slökkviliðs- og björgunarsveitarmenn hafa verið mjög áberandi á svæðinu og hafa þeir aðstoðað fólk með allt frá þrifum til gangsetningu ökutækja. „Þetta er svo ómetanlegt starf, við erum bara alveg afskaplega þakklát," segir Ragnheiður Hlín Símonardóttir. Og íbúarnir eru ekki þeir einu sem eru þakklátir því slökkviliðið og björgunarsveitirnar fara fögrum orðum um fólkið á svæðinu. Þá hefur fjöldi fólks tekið sig saman og gengið á bæi til þess að bjóða fram aðstoð sína, þeirra á meðal Atli Gíslason alþingismaður og eiginkona hans Rannveig Sigurðardóttir sem vilja frekar gera gagn með höndunum en ekki munninum.
Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent „Það er mikið verið að suða“ Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira