SA ítreka samningsvilja 3. maí 2011 14:17 Vilhjálmur Egilsson, formaður Samtaka atvinnulífsins
Stjórn Samtaka atvinnulífsins ákvað á fundi nú í hádeginu að láta enn á ný reyna á vilja Alþýðusambands Íslands og landssambanda þess til að ljúka gerð þriggja ára kjarasamnings á svipuðum forsendum og áður. SA munu því hitta viðsemjendur sína á fundi í dag kl. 15 hjá ríkissáttasemjara til að freista þess að ljúka gerð nýs kjarasamnings á almennum vinnumarkaði. Framkvæmdastjórn SA lýsti því yfir á föstudag að samtökin telji mikilvægt að skapa fyrirtækjum landsins starfsöryggi og frið. Undanfarna mánuði hafa Samtök atvinnulífsins og ASÍ og landssamböndin unnið að gerð þriggja ára kjarasamnings sem byggir á atvinnuleiðinni. Með henni er sköpuð ákveðin framtíðarsýn þar sem áherslan er lögð á hagvöxt, öruggt og tryggt starfsumhverfi fyrir allar atvinnugreinar, aukningu kaupmáttar og að draga úr atvinnuleysi. Til þess að ná þessu fram var aðkoma ríkisstjórnarinnar nauðsynleg. Þetta kemur fram í tilkynningu frá SA. Þegar viðræðum um kjarasamning var slegið á frest fyrir páska lá fyrir grunnur að kjarasamningi aðila en út af stóðu nokkur mál sem ræða þurfti nánar við ríkisstjórnina. Á fimmtudagskvöld í síðustu viku bárust ný drög að yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarasamningana. Að mati SA var þar komið að nokkru til móts við sjónarmið samtakanna um auknar framkvæmdir í hagkerfinu auk þess sem sett var fram ákveðin bókun um meðferð frumvarps um sjávarútvegsmál. Ljóst er að ríkisstjórnin er óbundin af yfirlýsingunni náist ekki kjarasamningar til þriggja ára.
Tengdar fréttir Þolinmæðin á þrotum hjá aðildarfélögum ASÍ Samninganefnd Alþýðusambands Íslands (ASÍ) beinir því til aðildarfélaga sinna að vísa kjaradeilum til ríkissáttasemjara og undirbúa um leið aðgerðir sem þrýsti á atvinnurekendur og tryggi launahækkanir á þessu ári. „Deilan verður ekki leyst með rökum þegar við mætum bara rökleysu,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, og kveður vel geta komið til verkfalla. 27. apríl 2011 04:00 Verkfall hefði gríðarlegar afleiðingar Formaður Rafiðnaðarsambandsins segir atvinnurekendum stríð á hendur. Verkfallsboðun um miðjan maí er nú raunverulegur möguleiki haldist afstaða SA óbreytt að mati ASÍ. 27. apríl 2011 18:35 Nú eru þáttaskil - ASÍ lætur sverfa til stáls "Samtök atvinnulífsins hafa haft landssamböndin innan ASÍ að ginningarfíflum í næstum hálft ár þar sem grímulaus hagsmunagæsla fyrir LÍÚ vegur þyngra en hagsmunir almenns launafólks. Nú verður látið sverfa til stáls í krafti samstöðunnar sem á tæpum hundrað árum hefur fært vinnandi fólki á Íslandi ófáa sigrana. Nú þarf að brjóta gíslatöku SA á bak aftur." Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Alþýðusamband Íslands hefur sent frá sér vegna þeirrar stöðu sem upp er komin í kjaraviðræðum. Þar segir að yfirlýsing Samtaka atvinnulýfsins frá því fyrr í dag þess efnis að samtökin vilji gera 3 ára kjarasamning komi of seint. "Það sem var í umræðunni fyrir páska kemur ekki lengur til greina. SA hafnaði þeim 3 ára kjarasamningi sem þá lá á borðinu og gerði síðan kjarasamning nokkrum dögum síðar sem fól í sér mun meiri hækkanir en menn ræddu fyrir páska. Eðlilegt er að aðildarsamtök innan ASÍ vilji sækja þær hækkanir. SA hefur í þessum kjaraviðræðum hagað sér eins og spilltur krakki. Allt skildi vera á þeirra forsendum. Nú vilja þeir snúa tímahjólinu aftur til 15. apríl eins og ekkert hafi gerst. Svona hegðun hefur nákvæmlega engan trúverðugleika. Nú eru þáttaskil. Aðildarsamtök ASÍ eru ekki til viðræðu um lengri samning en til eins árs,“ segir í yfirlýsingu ASÍ. "Nú er svo komið að ekki verður lengur við makalausa framkomu SA búið. Hvert landssambandið innan ASÍ á fætur öðru hefur vísað kjaradeilunni við atvinnurekendur til ríkissáttasemjara og í flestum þeirra er farið að huga að verkfallsaðgerðum. Verkfallsvopnið er öflugt og notast aðeins í brýnni neyð. Nú er sú stund runnin upp að verkalýðshreyfingin sér ekki annan kost en að beita þessu vopni sínu.“ 29. apríl 2011 14:34 Forseti ASÍ: Við viljum sjá vor, vor hins vinnandi manns „Þetta er sá frostavetur sem íslenskt launafólk hefur gengið í gegnum og þetta er sá frostavetur sem við viljum sjá ljúka – við viljum sjá vor, vor hins vinnandi manns,“ sagði Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, í ræðu sinni á verkalýðsdeginum á Akureyri. 1. maí 2011 15:29 Undirbýr allsherjarverkfall í maí Forseti ASÍ segir ekki koma lengur til greina að gera kjarasamning til þriggja ára. Verkalýðshreyfingin undirbúi nú allsherjarverkfall í maí sem verður rætt nánar eftir helgi. 30. apríl 2011 10:19 Mest lesið „Það verða engir konungar“ Erlent Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Innlent Kominn úr tunnunni og upp í lögreglubíl Innlent Símasamband verra eftir að slökkt var á eldri sendum Innlent Segir óheimilt hafi verið að sigla af stað með mótmælandann um borð Innlent „Sjaldan verið jafn góður tími og núna fyrir kaupendur“ Innlent Hópur fólks hafi setið um matinn í frískápnum Innlent Vilja veita nítján manns ríkisborgararétt Innlent Lögregla varar við svikahrappi í Árbæ Innlent „Þetta er eitthvert langsóttasta bull sem ég hef heyrt“ Innlent Fleiri fréttir Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Símasamband verra eftir að slökkt var á eldri sendum Bjartsýni um að ljúka þingstörfum á morgun Kominn úr tunnunni og upp í lögreglubíl Segir óheimilt hafi verið að sigla af stað með mótmælandann um borð „Sjaldan verið jafn góður tími og núna fyrir kaupendur“ Hólmsteinn skriðinn úr tunnunni Í haldi lögreglu eftir fjölskylduerjur í Garðabæ Vilja veita nítján manns ríkisborgararétt Lögregla varar við svikahrappi í Árbæ Í beinni frá Hvalfirði: Mótmælandi enn í hvalbát Handtekin á leið úr landi með ríflega hundrað fuglsegg og lifandi unga Sigldu af stað með mótmælandann um borð Vilja segja „já til að sjá“ „Þetta er eitthvert langsóttasta bull sem ég hef heyrt“ Annmarkar á fleiri en einu stigi málsins Landsréttur sýknar Sindra og Ísidór af hryðjuverkaákæru „Ég veit ekki hvað annað ég get gert til að hjálpa hvölunum“ Systir Ming Ting: Catherine „ekki sjálfstæð“ „Þurfum að passa okkur að vera ekki einföld“ Ekki hafi verið ásetningur um að bana sambýliskonunni Klórför eins og þegar fólk „reynir að losa sig úr kyrkingunni“ Hyggjast sekta leigusala sem skrá ekki samninga Jón Björn ráðinn sveitarstjóri Þingmenn beðnir um að vera á tánum og tímamót í golfsögu Íslendinga nálgast Mótmælendur ekki kærðir eftir truflun á þingfundi Jón Magnús frá Ölmu og aftur á spítalann Hópur fólks hafi setið um matinn í frískápnum Bein útsending: Samtal um þjóðaröryggi – Lýðræði á tímum upplýsingaóreiðu Myndaveisla: Norðlendingar fögnuðu á 17. júní Sjá meira
Þolinmæðin á þrotum hjá aðildarfélögum ASÍ Samninganefnd Alþýðusambands Íslands (ASÍ) beinir því til aðildarfélaga sinna að vísa kjaradeilum til ríkissáttasemjara og undirbúa um leið aðgerðir sem þrýsti á atvinnurekendur og tryggi launahækkanir á þessu ári. „Deilan verður ekki leyst með rökum þegar við mætum bara rökleysu,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, og kveður vel geta komið til verkfalla. 27. apríl 2011 04:00
Verkfall hefði gríðarlegar afleiðingar Formaður Rafiðnaðarsambandsins segir atvinnurekendum stríð á hendur. Verkfallsboðun um miðjan maí er nú raunverulegur möguleiki haldist afstaða SA óbreytt að mati ASÍ. 27. apríl 2011 18:35
Nú eru þáttaskil - ASÍ lætur sverfa til stáls "Samtök atvinnulífsins hafa haft landssamböndin innan ASÍ að ginningarfíflum í næstum hálft ár þar sem grímulaus hagsmunagæsla fyrir LÍÚ vegur þyngra en hagsmunir almenns launafólks. Nú verður látið sverfa til stáls í krafti samstöðunnar sem á tæpum hundrað árum hefur fært vinnandi fólki á Íslandi ófáa sigrana. Nú þarf að brjóta gíslatöku SA á bak aftur." Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Alþýðusamband Íslands hefur sent frá sér vegna þeirrar stöðu sem upp er komin í kjaraviðræðum. Þar segir að yfirlýsing Samtaka atvinnulýfsins frá því fyrr í dag þess efnis að samtökin vilji gera 3 ára kjarasamning komi of seint. "Það sem var í umræðunni fyrir páska kemur ekki lengur til greina. SA hafnaði þeim 3 ára kjarasamningi sem þá lá á borðinu og gerði síðan kjarasamning nokkrum dögum síðar sem fól í sér mun meiri hækkanir en menn ræddu fyrir páska. Eðlilegt er að aðildarsamtök innan ASÍ vilji sækja þær hækkanir. SA hefur í þessum kjaraviðræðum hagað sér eins og spilltur krakki. Allt skildi vera á þeirra forsendum. Nú vilja þeir snúa tímahjólinu aftur til 15. apríl eins og ekkert hafi gerst. Svona hegðun hefur nákvæmlega engan trúverðugleika. Nú eru þáttaskil. Aðildarsamtök ASÍ eru ekki til viðræðu um lengri samning en til eins árs,“ segir í yfirlýsingu ASÍ. "Nú er svo komið að ekki verður lengur við makalausa framkomu SA búið. Hvert landssambandið innan ASÍ á fætur öðru hefur vísað kjaradeilunni við atvinnurekendur til ríkissáttasemjara og í flestum þeirra er farið að huga að verkfallsaðgerðum. Verkfallsvopnið er öflugt og notast aðeins í brýnni neyð. Nú er sú stund runnin upp að verkalýðshreyfingin sér ekki annan kost en að beita þessu vopni sínu.“ 29. apríl 2011 14:34
Forseti ASÍ: Við viljum sjá vor, vor hins vinnandi manns „Þetta er sá frostavetur sem íslenskt launafólk hefur gengið í gegnum og þetta er sá frostavetur sem við viljum sjá ljúka – við viljum sjá vor, vor hins vinnandi manns,“ sagði Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, í ræðu sinni á verkalýðsdeginum á Akureyri. 1. maí 2011 15:29
Undirbýr allsherjarverkfall í maí Forseti ASÍ segir ekki koma lengur til greina að gera kjarasamning til þriggja ára. Verkalýðshreyfingin undirbúi nú allsherjarverkfall í maí sem verður rætt nánar eftir helgi. 30. apríl 2011 10:19