Reka ísbjarnahótel í Manitoba KMU skrifar 3. maí 2011 19:59
Ísbjarnardráp, eins og á Hornströndum í gær, myndi kalla á lögreglurannsókn á Svalbarða og líklega leiða til ákæru. Íslenskur þyrluflugmaður, sem fangað hefur sexhundruð ísbirni í Kanada, segir einfalt að ná þeim lifandi. Í Manitoba eru vandræðabirnir settir á ísbjarnahótel. Í frétt Stöðvar 2 frá Svalbarða fyrir tíu dögum kom fram að ólíkt því sem tíðkast á Íslandi er það ekki það fyrsta sem menn gera að skjóta ísbirni sem koma nærri mönnum. Þar kallar ísbjarnardráp undantekningalaust á lögreglurannsókn og ef ekki er sýnt fram á nauðvörn í lífsháska eru menn ákærðir. Allt annað er reynt en að skjóta þá. „Það síðasta sem menn gera er að skjóta. Það viljum við helst ekki gera," segir Henrik Joseffsson, leiðsögumaður á ísbjarnaslóðum Svalbarða. Benedikt Henry Guðmundsson þyrluflugmaður vann við það í þrjú ár í Kanada að fljúga með skyttur með deyfibyssur til að svæfa og merkja ísbirni. Skotið var úr fimm til tíu metra hæð, ýmist í háls eða afturenda til að skaða þá sem minnst. Það taki deyfilyfið í kringum sjö mínútur að virka og oftast dugi að skjóta einni ör. Þetta sé einfalt að gera. Hann segir mesta hættuna á Hornströndum að björninn hlaupi út í sjó og drukkni þegar lyfin fari að virka en við slíkar aðstæður reyni menn að snara dýrið úr þyrlunni. Benedikt spyr hins vegar hvaða skynsemi sé í því að koma ísbirni í búr og flytja hann með miklum tilkostnaði til heimaslóða á Austur-Grænlandi til þess eins að láta veiðimenn skjóta hann þar. Þá sé betra að skjóta björninn á Íslandi og draga hann frá veiðikvóta Grænlands. Á austurströnd Grænlands sé veiðikvóti upp á tugi bjarndýra á hverju ári sem atvinnuveiðimenn skjóti. Benedikt segir að í Manitoba glími menn einnig við ísbjarnavanda á vorin og þar séu dýrin höfð á sérstöku ísbjarnahóteli allt sumarið án matar enda með nægan fituforða eftir veturinn. Þegar Hudson-flóa leggi á ný sé dýrunum hleypt út af hótelinu og þau haldi þá út á ísinn. Þar hafi þetta gengið vel. Á Íslandi þyrftu menn þó að bíða kannski í mörg ár eftir að fá hafís að ströndum til að sleppa þeim út á.
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Erlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Fleiri fréttir Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Sjá meira