Þór Saari: Óraunhæfir kjarasamningar Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar 6. maí 2011 12:04
Þingmaður Hreyfingarinnar segir yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar vegna nýrra kjarasamninga vera óraunhæfa og ríkið geti ekki staðið undir henni. Hann telur að launþegar muni fella samningana í atkvæðagreiðslu og sækja sér meiri launahækkanir. Þór Saari þingmaður Hreyfingarinnar gagnrýnir harðlega yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar vegna nýrra kjarasamninga. Hann segir yfirlýsinguna óljósa og erfitt sé að sjá í hvernig eigi að ráðstafa 60 milljarða fjárfestingu sem lofað er sem og hvaðan peningarnir eigi að koma. „Ríkissjóður á ekki fyrir þessum útgjöldum og þeir munu þá koma eingöngu úr frekari skattahækkunum eða niðurskurði annars staðar. Þannig þetta hljómar eins og einhver þykjustu dúsa upp í aðila vinnumarkaðarins til að skrifa undir, en ég fæ ekki séð að ríkið muni bara geta staðið undir það sem það lofaði," segir hann. Þá segir Þór kjarasamningana byggja á verðbólguspám Seðlabankans og Alþýðusambandsins sem hafi aldrei staðist hingað til. „Ég er svolítið hræddur um að launafólk komi með skarðan hlut frá þessum samningum, þeir verði til málamynda til að skapa frið á vinnumarkaði sem að mun ekki halda," segir Þór. Hann segir launahækkanir í samningunum vera of lágar. Hann telur að samningarnir verði felldir í atkvæðagreiðslu. „Ég held að launafólk þurfi að snúa betur bökum saman og sækja sér ríflegri launahækkanir og vera öflugra í andstöðu sinni við þá aðför sem búið er að fara gegn almenningi hérna undanfarin þrjú ár. Samtök launafólks eiga að gæta hagsmuna þeirra og ég tel að þau hafi ekki staðið sig nægilega vel í þessum kjarasamningum og tel því að launafólk eigi að rísa upp og fella þessa samninga," segir Þór.
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Erlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Fleiri fréttir Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Sjá meira