Enn tekist á um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu 6. maí 2011 18:30
Ríkisstjórninni tókst ekki að afgreiða frumvörp til breytinga á fiskveiðistjórnunarkerfinu í dag. Málið hefur tafist í marga mánuði vegna ágreinings milli stjórnarflokkanna um hversu langt eigi að ganga í breytingum á kvótakerfinu. Deilan snýst meðal annars um svokallaðan leigupott sem á tryggja að kvótalausar útgerðir geti leigt kvóta beint af ríkinu. Þannig á að líka að opna fyrir nýliðun í greininni. Samfylkingin leggur áherslu á að leigupotturinn ásamt strandveiði- og byggðakvóta verði fyrst í stað tíu prósent af heildarkvóta en fari upp í allt að tuttugu prósent eftir fimmtán ár. Vinstri grænir hafa hins vegar talað um sjö til fimmtán prósent í þessu samhengi. Þá ríkir ekki sátt milli stjórnarflokkanna um hvernig haga eigi gjaldtöku af kvótaleigu. Málið hefur tafist í marga í mánuði vegna þessa en Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, lýsti því yfir í byrjun árs að frumvarpið yrði tilbúið í febrúar. Nú stendur til að klára málið í næstu viku en málið fyrst kynnt hagsmunaaðilum. „Það er engin töf," segir Jón Bjarnason. Það er gríðarlega mikil vinna sem tengist þessu. Þetta eru tvö frumvörp sem þarna eru á ferðinni, annars vegar frumvarp sem tekur á aðgerðum sem gætu komið til framkvæmda nú þegar á þessu ári og í byrjun næsta fiskveiðiárs sem hefst 1. september og hins vegar frumvarp sem tekur á grundvallarbreytingum á fiskveiðistjórnunarkerfinu og framkvæmd þess til lengri tíma." Ráðherra samfylkingarinnar vildu hins vegar lítið tjá sig um málið að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun.
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Erlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Fleiri fréttir Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Sjá meira