Katrín skartaði sínu fegursta í brúðkaupinu Jón Hákon Halldórsson skrifar 24. apríl 2011 11:06
Hún var troðfull Kópavogskirkjan klukkan sjö í gær þegar Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra og Bjarni Bjarnason rithöfundur voru gefin saman í heilagt hjónaband. Það er mál manna sem voru viðstaddir að andrúmsloftið hafi verið ákaflega kærleiksríkt í kirkjunni. Á meðal brúðkaupsgesta voru Össur Skarphéðinsson, samráðherra Katrínar, Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, þingmennirnir Þórunn Sveinbjarnardóttir og Róbert Marshall, auk fjölmiðlakvennanna, Brynju Þorgeirsdóttur, Mörtu Maríu og Ellýjar Ármanns.Skartaði sínu fegursta Brúðurin skartaði sínu fegursta, var með hárið tekið aftur, klædd í fallegan einlitan ljósgráan kjól. Faðir hennar og sonur, sem eiga það sameiginlegt að heita Júlíus, leiddu hana inn kirkjugólfið. Sonur brúðgumans var einnig viðstaddur brúðkaupið og sat við hlið hans í kirkjunni. Gissur Páll Gissurarson tenór söng við athöfnina, þar á meðal eitt frumsamið lag sem heitir Sólarlagið og er eftir Tómas Guðna Eggertsson, en hann var organisti við athöfnina. Textann við lagið skrifaði Sigurbjörg Þrastardóttir. Róbert Marshall, félagi Katrínar úr þingflokki Samfylkingarinnar, söng og spilaði á gítar þegar nýgift brúðhjónin ásamt sonum þeirra tveimur gengu út úr kirkjunni. Róbert söng „Lífið er yndislegt" og gestir tóku undir með honum. Brúðhjónin gáfu sér tíma í anddyri kirkjunnar til þess að taka á móti heillaóskum kirkjugesta með því að heilsa öllum með faðmlagi áður en þau yfirgáfu kikjuna.Salurinn skreyttur með páskaeggjum Eftir athöfnina skunduðu gestir beint í Glersalinn á Salarvegi í Kópavogi þar sem veislan var haldin. Veislusalurinn og borðin voru skreytt með grænum smákökum, svokölluðum „cupcakes" og páskaeggjum. Gestum var boðið upp á ítalska smárétti, vínveitingar, tertur og kaffi. Gestir skemmtu brúðhjónunum og hver öðrum með skemmtilegum ræðum og æskuvinkonur Kötu sýndu myndband frá því úr gæsapartýinu hennar. Loks mætti plötusnúður á svæðið og sá til þess að brúðhjón, synir þeirra og gestir dönsuðu langt fram á rauða nótt.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Fleiri fréttir „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Sjá meira