Íslenska ríkið gæti þurft að greiða gengislánaskuldurum skaðabætur 26. apríl 2011 12:17 Björn Þorri Viktorsson
Íslenska ríkið - en ekki fjármálafyrirtæki - gæti þurft að greiða gengislánaskuldurum skaðabætur, fallist eftirlitsstofnun EFTA á það sjónarmið grasrótarsamtaka að ríkið hafi brotið á rétti neytenda með því að lögbinda seðlabankavexti á ólögleg gengislán. Hagsmunasamtök heimilanna, Samtök lánþega, og um eitt þúsund einstaklingar hafa nú sent formlega kvörtun til Eftirlitsstofnunar EFTA, ESA, vegna meintra brota íslenskra stjórnvalda og stjórnsýslu á neytendarétti. Kvörtunin er í nokkrum liðum og ítarlega rökstudd á 18 kílógrömmum af pappír eftir því sem fram kom í viðtali við Björn Þorra Viktorsson, hæstaréttarlögmann og talsmanns hópsins, í Í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Þar var hann spurður að því hvaða afleiðingar það hefði ef ESA féllist á þeirra sjónarmið. Í morgun sendu þingmenn Hreyfingarinnar síðan frá sér fréttatilkynningu og kveðast hafa lagt fram lagafrumvarp til að afnema lagabreytinguna sem gerð var eftir gengislánadómana. Hreyfingin segir að Hæstiréttur hafi ekki skorið úr um hvort hægt sé að krefjast viðbótargreiðslna aftur í tímann á grundvelli endurútreiknings eða að heimilt sé að bæta endurútreiknuðum viðbótarvöxtum við höfuðstól lánanna. Enn fremur segja þeir að staða margra lántakenda hafi breyst til hins verra með endurútreikningum fjármálafyrirtækja. Og taka dæmi af tæplega 30 milljóna króna láni sem tekið var um mitt ár 2006, eftir endurútreikninginn hafi mánaðarleg greiðslubyrði þess láns hækkað um 128%, úr tæpum 130 þúsund krónum mánuði upp í rúm 300 þúsund. Viðtalið við Björn Þorra má hlusta á með því að smella á tengilinn hér að ofan.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Fleiri fréttir Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Sjá meira