Segir hækkunina nema 27 prósentum 27. apríl 2011 19:46
Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Isavia, segir að hækkun gjaldskrár á bílastæðum við Leifsstöð nemi 27 prósentum en ekki 50 prósentum eins og Félag íslenskra bifreiðaeigenda heldur fram. Hækkunin miðast við að lagfæra í samræmi við vísitölubreytingar frá síðustu hækkun sem var að sögn Hjördísar árið 2006. Fyrstu sjö dagana nemur hækkunin um 27 prósentum en frá degi 8 og upp í ellefu er hún meiri eða nálægt 50 prósentum. Ástæðuna fyrir því segir Hjördís vera þá að verið sé að jafna gjaldið út og hækkar það nú jafnt frá degi til dags. Fyrsta vikan kostar 5600 krónur í dag og er þar um 27 prósenta hækkun að ræða frá því sem var. Þegar gjaldið var ákveðið var einnig stuðst við rannsóknir á ferðamynstri Íslendinga sem hafi sýnt að flestir sem nýti sér stæðin leggi þar í viku til tíu daga. Þá hafi gjaldskráin verið miðuð við hvað kosti að leggja í bílastæði í Reykjavík. Að endingu segir Hjördís ekki rétt að um einokunaraðstöðu sé að ræða. Aðrir kostir séu í boði fyrir þá sem vilji geyma bíla sína í nágrenni við flugvöllinn.
Tengdar fréttir Bílastæðagjöld við Leifsstöð hækka um 50% Bílastæðagjöld við Leifsstöð hækkuðu um tæp fimmtíu prósent 15.apríl síðastliðinn. Framkvæmdastjóri FÍB segir þetta ósvífna hækkun hjá fyrirtæki í einokunarstöðu einmitt þegar vertíð ferðalaga til útlanda er að hefjast Þetta kemur fram á fréttavef FÍB. Þar segir að gjald fyrir 10 daga afnota af langtímabílastæði við Leifsstöð sé nú 7.400 krónur en var áður rúmar fimm þúsund krónur. Gjaldið hafi því verið hækkað um tæplega 50% á einu bretti. Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri FÍB segir hækkunina ósvífna. „Þetta gerðist án þess að nokkur tilkynning væri send út eða reynt að skýra hvers vegna menn eru að hækka gjöldin um þessar stóru upphæðir, og þetta er auðvitað mjög ámælisvert og við teljum að stjórnvöld muni skoða þetta sérstaklega í ljósi þess að þarna er um að ræða bílastæði sem eru í boði, þeir hafa þarna einokunarstöðu þar sem það eru engin önnur bílastæði í boði við flugstöð Leifs Eiríkssonar,“ segir hann. Þá segir hann tímasetninguna ekki síður slæma. „Menn virðast sæta lagi núna þegar ferðamannavertíðin er að hefjast og koma inn með þessar miklu hækkanir, þvert á þá þróun sem menn vilja vera að sjá á verðlagi hér innanlands þá er þetta mjög alvarlegt að gera þetta með þessum hætti,“ segir Runólfur. 27. apríl 2011 12:16 Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Fleiri fréttir Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Sjá meira
Bílastæðagjöld við Leifsstöð hækka um 50% Bílastæðagjöld við Leifsstöð hækkuðu um tæp fimmtíu prósent 15.apríl síðastliðinn. Framkvæmdastjóri FÍB segir þetta ósvífna hækkun hjá fyrirtæki í einokunarstöðu einmitt þegar vertíð ferðalaga til útlanda er að hefjast Þetta kemur fram á fréttavef FÍB. Þar segir að gjald fyrir 10 daga afnota af langtímabílastæði við Leifsstöð sé nú 7.400 krónur en var áður rúmar fimm þúsund krónur. Gjaldið hafi því verið hækkað um tæplega 50% á einu bretti. Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri FÍB segir hækkunina ósvífna. „Þetta gerðist án þess að nokkur tilkynning væri send út eða reynt að skýra hvers vegna menn eru að hækka gjöldin um þessar stóru upphæðir, og þetta er auðvitað mjög ámælisvert og við teljum að stjórnvöld muni skoða þetta sérstaklega í ljósi þess að þarna er um að ræða bílastæði sem eru í boði, þeir hafa þarna einokunarstöðu þar sem það eru engin önnur bílastæði í boði við flugstöð Leifs Eiríkssonar,“ segir hann. Þá segir hann tímasetninguna ekki síður slæma. „Menn virðast sæta lagi núna þegar ferðamannavertíðin er að hefjast og koma inn með þessar miklu hækkanir, þvert á þá þróun sem menn vilja vera að sjá á verðlagi hér innanlands þá er þetta mjög alvarlegt að gera þetta með þessum hætti,“ segir Runólfur. 27. apríl 2011 12:16