Rekstur Álftaness gekk betur en búist var við Jón Hákon Halldórsson skrifar 28. apríl 2011 20:11 Það var meðal annars fjárfesting í sundlauginni sem fór illa með fjárhag Álftaness. Mynd/ GVA.
Um átta milljóna króna tap var á rekstri Álftanesbæjar á síðasta rekstrarári. Áætlanir höfðu hins vegar gert ráð fyrir að tapið yrði 102 milljónir króna. Eigið fé sveitarfélagsins er neikvætt um 1249 milljónir króna. Fjárhagsmál sveitarfélagsins Álftanesbæjar voru mjög mikið til umfjöllunar fyrir um það bil ári síðan. Gríðarlegur vandi steðjaði að sveitarfélaginu vegna mikilla fjárfestinga, meðal annars í byggingu sundlaugar í sveitarfélaginu. Í febrúar í fyrra skipaði þáverandi samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra fjárhaldsstjórn til að hafa forystu um endurskipulagningu fjármála Álftaness. Meirihlutinn í bæjarstjórn Álftaness segir að niðurstaðan beri þess merki að tekist hafi að snúa neikvæðri þróun í rekstri í jákvæða. Bendir meirihlutinn á að 322 milljóna króna tap hafi verið á rekstri sveitarfélagsins á árinu 2009. „Samanburður á kostnaði innan ársins í endurskoðunarskýrslu staðfestir að hagræðingaraðgerðir og kostnaðareftirlit fjárhaldsstjórnar og bæjarstjórnar séu farnar að bera umtalsverðan árangur á seinni helmingi ársins," segir meirihlutinn í bókun á bæjarstjórnarfundi. Minnihlutinn í bæjarstjórn segir hins vegar að ársreikningurinn sýni glöggt aukna skattheimtu og niðurskurð á þjónustu við íbúana. Afleiðingarnar séu meðal ananrs fækkun íbúa og þar með rýrnun skatttekna. „Íbúum á Álftanesi fækkar í fyrsta skipti um áratuga skeið á sama tíma og íbúum nágrannasveitarfélaganna, Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi og Mosfellsbæ fjölgar. Ef aðstæður á fasteignamarkaði væru betri væri fækkunin vafalaust umtalvert meiri,“ segir meirihlutinn.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Fleiri fréttir Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft Sjá meira