Gyðjur komu saman í Hafnarfirði 9. apríl 2011 07:56 MYNDIR/Ólafur Þórisson (www.olinn.net)
Fjórar galvaskar athafnakonur þær Ása Karín ráðgjafi hjá Capacent, Linda framkvæmdastjóri Hress, Málmfríður eigandi Carita-Snyrting og Sigga gullsmiður hjá Siggu & Timo ákváðu að gera sér glaðan dag og halda gleði fyrir galvaskar gyðjur. „Það mættu um 450 konur á Sjónarhól á Gyðjugleðina en gleði, gæfa og gæsahúð voru merki kvöldsins," segir Linda spurð hvernig kvöldið heppnaðist en eins og meðfylgjandi myndir sýna var gleðin við völd. „Mikill vinkonukærleikur var á svæðinu þar sem þröngt var setið og fjölbreytt flóra af konum á hverju borði. Við gengum út frá orðunum gæfan fylgi þér. Ása Karin flutti smá pistil um að hver er sinnar gæfu smiður og við freistuðum gæfunnar og drógum út veglega vinninga. Maria Heba leikkona var veislustjóri og Margrét Eir og Bjarni Ara sungu en þau eru öll Hafnfirðingar," útskýrir Linda. „Gyðjugleðjandi magadansarar frá danshópnum Gordjöss dönsuðu við mikil fagnaðarlæti og síðan heiðruðum við hvunndagshetjuna Hallfríði Reynisdóttur en hún er gift Guðjóni formanni MND félagsins sem greindist með MND árið 2004. Á bak við sterkan mann er sterk kona og það er hún Halla," segir Linda. „Við erum allar hvunndagshetjur og eigum skilið klapp á bakið en það var gaman og gott að klappa henni á bakið því hún hefur gengið í gegnum svo margt. Kristín Einarsdóttir yfir iðjuþjálfi Háskóla sjúkrahúss flutt erindi um Höllu og hennar mann og gerði það með húmor og virðingu við þeirra aðstæðum svo vel að það táraðist allur salurinn. Halla og hennar fjölskylda eiga örugglega 450 nýjar vinkonur sem eru til í að klappa þeim á bakið í framtíðinni," segir Linda. „Halla fékk góðar dekur gjafir, árskort í Hress, gjafaöskju og dekurdag á Caritu, glæsilegt skart frá Siggu & Timo, gjöf frá fræinu í Fjarðarkaupum, nuddtíma frá nuddheimum og fleira. Þegar konurnar fóru heim fengu þær gjafapoka og góð orð um að gæfan fylgdi þeim. Í pokanum var gloss og hreinsilína frá Clinique og Caritu, Corny og tyggjó frá Innnes, sódavatn frá klettavatni, silfurhreinsiklútur frá Siggu og Timo, vikupassi í Hress, 1000 króna gjafakort í Caritu og dömubindi frá Secue Fit." „Þetta var magnað kvöld og ég er í gleðikasti og elska allt og alla eftir kvöldið. Firðrildavængir í maganum og gleðiblik í augunum," segir Linda að lokum.Ólafur Þórisson ljósmyndari tók myndirnar.
Mest lesið Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið Fleiri fréttir Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Sjá meira