Yngri kennurum fækkar 1. mars 2011 10:08 Mynd úr safni / Anton Brink
Haustið 2010 eru 7.589 starfsmenn í 6.858 stöðugildum í grunnskólum á Íslandi. Þar af eru 4.886 starfsmenn við kennslu í 4.671 stöðugildi. Starfsfólki fækkaði á milli ára annað árið í röð. Starfsmönnum við kennslu, þ.e. skólastjórnendum, deildarstjórum og kennurum fækkar um 92, sem er fækkun um 1,8%. Frá árinu 2008, þegar starfsmenn við kennslu voru flestir, hefur þeim fækkað um 215 manns. Sé litið á stöðugildi hefur stöðugildum sama hóps fækkað um 121 frá fyrra ári, sem er fækkun um 2,5%. Frá árinu 2008 hefur stöðugildum starfsmanna við kennslu fækkað um 345. Öðrum starfsmönnum grunnskólans en starfsfólki við kennslu hefur fækkað um 80 manns frá hausti 2008 og stöðugildum þeirra fækkað um 129. Yngri kennurum fækkar meira á milli ára en þeim sem eldri eru. Þannig fækkar kennurum sem eru yngri en 45 ára um 127 frá fyrra ári, meðan starfsmönnum eldri en 45 ára fjölgar um 35. Meðalaldur starfsmanna við kennslu er nú 45 ár og fer hækkandi. Haustið 2010 eru 493 starfsmenn við kennslu 60 ára og eldri. og hefur fjölgað jafnt og þétt í þessum aldurshópi frá árinu 1998 þegar 232 starfsmenn voru sextugir og eldri. Fyrirsjáanlegt er að þessir starfsmenn munu fara á eftirlaun á næstu árum. Þegar starfshlutfall starfsmanna við kennslu og stjórnun er skoðað nánar sést að 568 færri einstaklingar eru nú skráðir í meira en fullt starf en haustið 2008. Svo virðist sem yfirvinna hafi minnkað hjá þessum hópi frá hausti 2008.Aldrei hærra hlutfall með réttindi Aldrei áður í mælingum Hagstofunnar hefur hlutfall kennara með réttindi mælst hærra. Á árunum 1998-2008 var hlutfall réttindakennara á bilinu 80-87%. Haustið 2010 eru 92,3% kennara með kennsluréttindi. Haustið 2010 voru 377 manns við kennslu án kennsluréttinda og er það mikil breyting frá haustinu 2002 þegar 931 einstaklingur án réttinda vann við kennslu í grunnskólum landsins. Hæst er hlutfall réttindakennara á landinu á höfuðborgarsvæðinu, þar sem um 96% kennara hafa kennsluréttindi. Aðeins á Austurlandi (79,6%) og Vestfjörðum (81,3%) eru minna en 87% kennara með kennsluréttindi en utan höfuðborgarsvæðisins hefur hlutfall kennara með kennsluréttindi aukist hratt síðustu ár.
Mest lesið Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Innlent „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Erlent Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Innlent Annar maður skotinn til bana af ICE Erlent Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Innlent Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Innlent Pétur Marteinsson kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík Innlent „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Innlent Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada Erlent Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Innlent Fleiri fréttir Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Pétur Marteinsson kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Gullhúðað afnám jafnlaunavottunar Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Vandræðagangur með skilaboð á versta tíma fyrir Heiðu Leita að öðrum til að taka við Ísafjarðarfluginu Allir hafi áhuga á Íslandi Biður Dóru Björt afsökunar eftir deilur um vetrarþjónustu Þrjátíu prósent Samfylkingarfélaga greitt atkvæði það sem af er Algengast að börn beiti foreldra sína ofbeldi og prófkjör Samfylkingarinnar „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Um 900 manns nú með lögheimili í Grindavík „Það átti að taka mig í karphúsið“ Selenskí undir miklum þrýstingi Tímamótaviðræður hafnar og ögurstund hjá Samfylkingunni Eldur í sendibíl á Miklubraut Arnar Grétarsson í stjórnmálin Gjörbreytt Langahlíð fyrir milljarð Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Samfylkingarmönnum í Reykjavík fjölgað um 72 prósent Sjá meira