Fékk milljón fyrir að giftast til málamynda Valur Grettisson skrifar 3. mars 2011 10:44 Héraðsdómur Reykjavíkur.
Asísk kona hafði betur gegn íslenska ríkinu í Héraðsdómi Reykjavíkur, en í dómi sem féll í gær, var úrskurði dómsmála- og mannréttindaráðuneytis frá febrúar á síðasta ári, þar sem staðfest var ákvörðun Útlendingastofnunar frá maí 2009, um að synja konunni um dvalarleyfi, ógiltur. Málið er hinsvegar athyglisvert fyrir þær sakir að eiginmaður konunnar, sem íslenskur, játaði fyrir Útlendingastofnun, að hann hefði gifst konunni til málamynda og fengið að auki eina milljón greidda fyrir. Útlendingastofnun tók viðtal við hjónin til þess að kanna hvort hjónabandið væri til málamynda. Rætt var við þau í sitthvoru lagi og þess krafist að þau undirrituðu plagg um að hjónabandið væri sannarlega raunverulegt. Konan skrifaði undir en eiginmaðurinn neitaði, því hann vildi ekki halda blekkingunni áfram að eigin sögn Hann játaði að hafa gifst konunni eftir að félagi hans, sem var giftur tælenskri konu, kynnti hann fyrir henni. Hann féllst á að giftast konunni fyrir eina milljón króna en hann hafði ákveðið að fara í nám. Hann hafi hinsvegar haft of háar tekjur til þess að fá námslán og því þurft peninginn. Konan starfaði í verslun á höfuðborgarsvæðinu á meðan eiginmaðurinn bjó og lifði á Akureyri. Eiginkonan hélt því fram fyrir Héraðsdómi að hún hafi ekki frétt af framburði eiginmannsins fyrr en eftir að ákvörðun Útlendingastofnunar, um að synja henni dvalarleyfi, var tekin. Hún hafi því ekki fengið að verja sig sem skyldi. Héraðsdómur féllst á þessi rök og sagði stofnunina ekki hafa virt reglur um málsmeðferð samkvæmt stjórnsýslulögum. Konan vann því málið þrátt fyrir ótvíræðar sannanir um málamyndahjónaband.
Mest lesið Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Fleiri fréttir Mótmæla hvalveiðum Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Bergmál, biðlistar og bongóblíða Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Þrjár alvarlegar líkamsárásir til rannsóknar: „Puttabrotinn á Sjallanum“ Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Sjá meira