Skóladótinu stolið frá verðandi klæðskera 3. mars 2011 10:47 Kjóll sem Fanney gerði á síðustu önn
Fanney Lilja Hjálmarsdóttir, nemi í klæðskera og kjólasaum við Iðnskólann í Reykjavík, varð fyrir því óláni að brotist var inn í bílinn hennar og skóladótinu hennar stolið. „Þetta var svakalegt sjokk," segir Fanney. Bíllinn hennar stóð á bílastæði Iðnskólans þegar brotist var inn í hann, milli klukkan 18 og 18.30 á mánudagskvöldið. Fanney var þá á kaffihúsi með bekkjarsystrum sínum eftir langan skóladag. Henni brá mjög þegar hún kom aftur að bílnum og sá að skóladótið var horfið, þar á meðal teikningar sem hún hafði unnið að síðasta mánuðinn og var að fara að skila inn sem heimaverkefni. Fanney er á sjöttu önn í klæðskera og kjólasaumi og hefur allt námið safnað að sér hinum ýmsu verkfærum sem nauðsynleg eru hverjum klæðskera, svo sem góðum skærum, reglustiku og nálum. „Þetta er dýr pakki þegar þarf að kaupa þetta allt í einu. Ég hef keypt þetta smátt og smátt, segir Fanney.Herrajakki sem Fanney saumaði á síðustu önn. Hann er á röngunni þar sem verið er að ganga frá fóðrinuTveimur töskum var stolið frá Fanneyju, skjalatösku með teikningum og skólatösku með verkfærunum. Þjófurinn sá hins vegar ekki ástæðu til að halda í teikningarnar því hann fleygði þeim við Austurbæjarskóla og var þeim komið til skila í Iðnskólann. „Ég var alveg ofboðslega fegin að fá þær aftur," segir Fanney en auk heimavinnunnar voru þar teikningar sem Fanney hefur unnið að frá upphafi námsins. Fanney hafði strax samband við lögreglu eftir að hún var rænd. Lögreglumenn komu á staðinn og tóku skýrslu en hún segir að henni hafi ekki verið gefnar miklar vonir um að eigur hennar kæmu í leitirnar. Amma Fanneyjar tók þjófnaðinn mjög nærri sér og biðlaði hún til Vísis um að greina frá málinu í von um að þjófurinn skili skóladótinu. Fanney er 21 árs gömul og hafði lokið hönnunarnámi áður en hún fór að læra kjólasaum. „Mig langaði bara að geta gert þetta allt sjálf," segir hún. Þjófurinn, eða aðrir sem geta veitt upplýsingar um eigur Fanneyjar, eru hvattir til að hafasamband við hana. Póstfangið er flilja89(hjá)gmail.com
Mest lesið Kourani farinn úr landi Innlent Systir Haraldar er látin Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla Innlent Fleiri fréttir Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Sjá meira