Ríkisstjórnin ætlar að skapa allt að 900 sumarstörf 3. mars 2011 16:19 Guðbjartur Hannesson.
Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra um átak til að fjölga tímabundnum störfum fyrir námsmenn og atvinnuleitendur næsta sumar líkt og gert var í fyrra. Áætlað er að verja allt að 370 milljónum króna til verkefnisins. „Vinnumálastofnun mun stýra átakinu sem efnt er til í samvinnu við stofnanir ríkisins og sveitarfélög,“ segir í tilkynningu frá velferðarráðuneytinu. „Stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs hefur samþykkt að verja allt að 250 milljónum króna til verkefnisins og ríkisstjórnin að veita 116 milljóna króna mótframlag úr ríkissjóði. Veittir verða styrkir úr Atvinnuleysistryggingasjóði sem nema að hámarki fjárhæð atvinnuleysisbóta fyrir hvern einstakling. Mótframlagi ríkisins er ætlað að mæta viðbótarkostnaði stofnana þess svo unnt sé að greiða laun samkvæmt kjarasamningum en sveitarfélögin munu sjálf standa straum af þessum viðbótarkostnaði.“ Af framlagi ríkisins eru um 10 milljónir króna ætlaðar til verkefna sem hljóta styrki úr Nýsköpunarsjóði námsmanna og eru á vegum ráðuneyta eða opinberra stofnana. Mennta- og menningarmálaráðuneytið annast umsýslu og kynningu vegna þessara verkefna. Þá segir að undirbúningur sé þegar hafinn að átakinu og hefur Vinnumálastofnun sent stofnunum ríkisins og sveitarfélögum orðsendingu um að tilgreina þau störf og verkefni sem fallið geta undir átaksverkefnið. Vonir standa til að með átakinu verði til 850-900 tímabundin störf í sumar fyrir námsmenn og atvinnuleitendur. Stefnt er að því að ljúka undirbúningi átaksins tímanlega í vor þannig að unnt verði að auglýsa störfin í byrjun apríl svo að í seinni hluta apríl liggi fyrir fjöldi starfa hjá hverri stofnun og sveitarfélagi og að þau geti þá gengið frá ráðningum. Störfin verða auglýst á heimasíðu Vinnumálastofnunar og ef til vill víðar og geta atvinnuleitendur sem eru á skrá hjá stofnuninni og námsmenn sótt um með rafrænum hætti líkt og í fyrra.
Mest lesið Kourani farinn úr landi Innlent Systir Haraldar er látin Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla Innlent Fleiri fréttir Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Sjá meira