Þriðji áratugurinn settur á svið 20. febrúar 2011 16:49
Sjónvarpsþættirnir Boardwalk Empire slógu í gegn í Bandaríkjunum á síðasta ári. Steve Buscemi er í aðalhlutverki í þáttunum sem gerast í Atlanta í upphafi þriðja áratugarins. Sigríður Björg Tómasdóttir kynnti sér þættina, sem hefja göngu sína á Stöð 2 í kvöld. Þáttaröðin Boardwalk Empire er ein þeirra sem komust í fréttir áður en hún var sýnd. Enda engin smámenni höfundar þáttanna sem gerast í Atlanta, við upphaf hins villta þriðja áratugar. Þar er fremstur í flokki leikstjórinn Martin Scorsese sem leikstýrði prufuþættinum, pilotinum svonefnda, en er að auki einn framleiðenda þáttanna. Prufuþátturinn taldist sá dýrasti sem gerður hefur verið fyrir sjónvarp, kostaði 18 milljónir dollara í framleiðslu samkvæmt Variety, ríflega tvo milljarða íslenskra króna. Að meðaltali var kostnaður við hvern þátt í fyrstu þáttaröð hins vegar um 5 milljónir dollarar eða um 85 milljónir.Scorsese við stjórnvölinn Leikarar þáttarins þurftu fæstir að heyra annað en að Scorsese væri viðriðinn þættina til að samþykkja að vera með. Scorsese, sem á að baki kvikmyndir á borð við Goodfellas, Taxi Driver og Raging Bull og er í hópi virtustu leikstjóra Bandaríkjanna, hafði fengið áhuga á sögu stjórnmálamannsins Enochs Lewis Johnson sem kallaður var Nucky. Náunginn sá var ekki bara áhrifamesti stjórnmálamaður Atlantic City í New Jerseyríki á þriðja og fjórða áratugnum heldur stjórnaði hann líka undirheimunum sem uxu hratt og örugglega eftir að áfengisbann var samþykkt í Bandaríkjunum. Framleiðandi fyrstu þáttaraðarinnar og aðalhandritshöfundur, Terence Winter, var áður en Boardwalk Empire-þættirnir voru frumsýndir í Bandaríkjunum síðastliðið haust, þekktastur fyrir hlut sinn í Sopranos-þáttaröðinni. Þar var hann einn aðalhandritshöfundur og framleiðandi. Sopranos-þættirnir voru ausnir lofi en Winter vildi ekki róa á sömu mið, vildi ekki gera þætti sem væru of nálægt sögusviði Tony Soprano. Það var meðal annars ástæðan fyrir því að hann heillaðist af heimi Nucky Johnson eftir að hafa lesið bókina Boardwalk Empire eftir Nelson Johnson; Atlantic City árið 1920 var nægilega fjarri New Jersey tíunda áratugarins til að hægt væri að búa til heim sem vísaði ekki í Sopranos-þættina.Atlanta eftir áfengisbann En hvert er svo umfjöllunarefni þáttanna? Í stuttu máli segja þeir frá Enoch Tompson, Nucky, borgar féhirði í Atlantic City, sem einnig sér sér hag í nýsamþykktum lögum sem banna áfengi. Það er mikill gróði í ólöglegu bruggi og hann ætlar sér hluta af því. Thompson þessi er byggður lauslega á áðurnefndum Johnson en höfundar taka sér skáldaleyfi, breyta og bæta sögu hans og völdu þar að auki Steve Buscemi í hlutverkið, en hann líkist á engan hátt fyrirmyndinni í útliti. Johnson mun hafa verið stór og karlmannlegur sem á kannski ekki beinlínis við Buscemi. Fjölmargar persónur koma við sögu og eru kynntar til leiks strax í fyrsta þætti en sagan hefst í þann mund sem verið er að samþykkja áfengisbann. Í fyrstu þáttum fylgjumst við með Nucky feta braut glæpanna um leið og hann sinnir starfi sínu í stjórnsýslu borgarinnar. Ráðamenn borgarinnar og helstu glæpaforingjar borgarinnar og stórborganna Chicago og New York eru kynntir til sögunnar og það liggur í loftinu að saga þeirra eigi eftir að fléttast saman. Lögreglumenn sem vinna við að uppræta spillingu í kringum áfengisbannið koma að sjálfsögðu við sögu og allir eiga það sameiginlegt að glíma við drauga fortíðarinnar. Þættirnir hafa verið gagnrýndir fyrir staðlaðar kvenímyndir og bent hefur verið á að flestar konurnar séu frekar einhliða týpur. Þó er þar undanskilin aðalkvenhetjan, Margaret Schroeder, sem er kynnt til sögunnar sem eiginkona ofbeldis- og drykkjumanns en fær að þróast og breytast. Shroeder er leikin af Kelly MacDonald sem sló fyrst í gegn í kvikmyndinni Trainspotting árið 1996 en hefur leikið í fjölda mynda síðan. Að búa til þriðja áratuginn er ekki lítið verk. Heill bær var byggður í Greenpoint í Brooklyn-hverfi New York borgar fyrir útitökur, tugir manna starfa við leikmynd og búninga. Gagnrýnendur hafa flestir lokið lofsorði á afurðina, útlit þáttanna þykir flott og sannfærandi og það sem meira er um vert, sagan er nægilega áhugaverð og spennandi.Buscemi besti leikarinn Þátturinn var raunar valinn sá besti á nýafstöðnum Emmy-verðlaunum og Steve Buscemi besti leikarinn í aðalhlutverki. Þó voru gagnrýnendur sem settu út á að Buscemi hefði verið valinn í hlutverk Nucky. En hinir sömu viðurkenndu að eftir nokkra þætti hefðu þeir verið sannfærðir - Buscemi væri maðurinn. Samstarf Buscemi og áðurnefnds Winters var farsælt í áðurnefndum Sopranos-þáttum. Buscemi leikstýrði nokkrum þáttum seríunnar, þar á meðal ellefta þætti þriðju seríu, "Pine Barren" sem talinn er til bestu sjónvarpsþátta sem hafa verið gerðir. Winter skrifaði handrit þáttarins sem segir frá átökum Paulie og Christopher við rússneska mafíósann Valery og endasleppum eltingaleik í skóglendi New Jersey. En þar fyrir utan fór Buscemi með hlutverk Tony Blundetto, frænda Tony Soprano. Blundetto var ekki langlífur í þáttunum, hans biðu sömu örlög og margra söguhetja sem Buscemi hefur leikið; Að vera drepinn áður en sagan er á enda. "They keep killing Steve Buscemi but he is not complaining," var heiti á grein um leikarann í New York Times fyrir nokkrum árum, eða "Það er alltaf verið að drepa Steve Buscemi en hann kvartar ekki". Steve Buscemi hefur leikið fjölmörg hlutverk í frábærum bíómyndum en oft verið í auðdrepanlegu aukahlutverki. Það er hins vegar ljóst að hann verður á lífi um skeið í Atlantic City sjónvarpsþáttanna Boardwalk Empire því önnur sería er í smíðum og miðað við vinsældirnar verða þáttaraðirnar fleiri. Þættirnir verða frumsýndir á Stöð 2 á morgun.Gengur tíska þriðja áratugarins aftur? Yfirbúningahönnuður Boardwalk Empire, John Dunn, hefur lýst því í viðtölum hversu mikil rannsóknarvinna það var að finna réttu fötin fyrir þáttaröðina, til að þriðji áratugurinn virkaði sannfærandi. Hann, samstarfskona hans Lisa Padovani, og þeir 35 starfsmenn sem vinna í búningadeild þáttanna lögðust í ýmiss konar heimildarvinnu. Skoðaðar voru ljósmyndir frá tímabilinu til að rannsaka tískuna - þær eru hins vegar allar í svarthvítu þannig að til viðbótar þurfti að skoða skriflegar heimildir. Mikil vinna var lögð í að nálgast föt frá tímanum, en þar sem þau eru 90 ára gömul er ekki einfalt mál að nota þau og oftar en einu sinni mun hafa komið fyrir að flíkur frá tímabilinu duttu í sundur á tökustað. Konur voru að losna úr viðjum lífstykkjanna árið 1920 og kventískan bar þess merki. Sniðin eru oft einföld og víð, þægilegri en hafði tíðkast fram að þessu. Glæsileiki samkvæmiskjóla frá tímabilinu fólst oft í efnum, saumaskap og smáatriðum sem erfitt er að leika eftir í dag, er haft eftir Dunn og Padovani. Vandaðar flíkur voru handsaumaðar og samkvæmiskjólar iðulega skreyttir steinum sem voru handsaumaðir í þunn og létt efni á borð við siffon. Tískuhönnuðir hafa reglulega sótt innblástur til þriðja áratugarins. Prada, Alberta Ferratta og Louis Vuitton eru nýleg dæmi og nú þegar marglofuð þáttaröð á borð við Boardwalk Empire hefur slegið í gegn þá eru tískuspekúlantar strax farnir að leita að merkjum þess að þriðji áratugurinn gangi aftur í fatatísku næstu ára. En þess má geta að á tískuvikunni í París á dögunum var eftir því tekið hve áberandi pastellitirnir voru, en þeir eru oft tengdir við þriðja áratuginn.
Mest lesið Brynjar skiptir Aroni út Lífið Ævintýralegur sumarfögnuður í Haukadal Lífið Harry Potter leikari tekur aftur við hlutverki sínu Lífið Hraustustu hjón Garðabæjar selja glæsihýsi Lífið Endanlega búið spil hjá Johnson og Martin Lífið „Okkur var ekkert cancelað, nema hann bara gerði það sjálfur“ Tónlist Vanvirkar fjölskyldur og hlutverkin sem skilja eftir sár Lífið Unga fólkið sækir í svissnesk TAG Heuer Lífið samstarf Svona hljómar Himinn og jörð í flutningi Svölu Lífið Romeo Beckham og Kim Turnbull sögð hætt saman Lífið Fleiri fréttir Harry Potter leikari tekur aftur við hlutverki sínu Brynjar skiptir Aroni út Ævintýralegur sumarfögnuður í Haukadal Svona hljómar Himinn og jörð í flutningi Svölu Romeo Beckham og Kim Turnbull sögð hætt saman Endanlega búið spil hjá Johnson og Martin Hraustustu hjón Garðabæjar selja glæsihýsi Kveða orðróminn í kútinn: „Það eru engar deilur“ Endurfrumsýning Brúðubílsins: „Lilli er eiginlega bróðir minn“ Opinberar nákvæmar upplýsingar um brjóstaaðgerðina Geðbrigði ríður á vaðið í tónleikaröð á Dillon Í sjokki að sonurinn hafi verið á typpinu Vanvirkar fjölskyldur og hlutverkin sem skilja eftir sár Morten Harket greinist með Parkinson Heillandi heimili Sigríðar hjá Birtingi í hjarta Hafnarfjarðar Ekki bara tónleikar heldur alhliða þungarokkshátíð Fjórum íslenskum útgáfum fagnað í tónlistarveislu í Iðnó Aron segist hættur í ClubDub Ragga nagli í hlutverk fjallkonu í Danmörku Dregur til baka hluta ásakana á hendur Baldoni Aron Kristinn og Lára keyptu nýstárlega miðbæjarperlu Módernískur retró-stíll í hjarta miðborgarinnar Tíu af fyndnustu dýralífsmyndunum Er með gervigreindarþjálfara Væbaramanía og múgæsingur er nýtt átak var kynnt Bergþór Másson selur slotið á ný Kaffibarinn til sölu í smækkaðri mynd Troðfylltu Laugardalshöll á umtöluðum tónleikum FM95Blö Söknuðurinn bar Skoppu og Skrítlu ofurliði Stjörnulífið: Sumarlegar skvísur og stórtónleikar Sjá meira