Sjálfstæðismenn gagnrýna breytingar á samkeppnislögum 23. febrúar 2011 15:35
Breytingar á samkeppnislögum voru samþykktar á Alþingi í dag en breytingarnar gera Samkeppniseftirlitinu meðal annars kleift að brjóta upp fyrirtæki án þess að þau hafi gerst sek um brot á samkeppnislögum eða öðrum landslögum í starfsemi sinni, að því er fram kemur í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum. Þingmenn flokksins greiddu atkvæði gegn frumvarpinu. „Helstu ástæður fyrir afstöðu þingmanna Sjálfstæðisflokksins koma með skýrum hætti fram í þeim nefndarálitum sem fulltrúar flokksins í viðskiptanefnd hafa lagt fram við meðferð málsins,“ segir ennfremur. Ákvæðið um heimild Samkeppniseftirlitsins til að brjóta upp fyrirtæki er harðlega gagnrýnt í umsögn sérfræðinga, sem finna má í framhaldsnefndaráliti fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í viðskiptanefnd. „Lýsa þeir miklum efasemdum um að þessi breyting á samkeppnislögunum muni verða til bóta og færa fyrir þeim efasemdum ýmsar ástæður.“Efast um að ákvæðið standist stjórnarskrá Sérfræðingarnir gera alvarlegan fyrirvara við að uppskiptingarákvæði frumvarpsins standist ákvæði stjórnarskrár Íslands sem verndar eignarrétt, sbr. 72. gr. hennar. Í umsögn sérfræðinganna segir um þetta atriði: ,,Hafa verður í huga að fyrirtæki geta náð mikilli markaðshlutdeild eða sterkri markaðsstöðu í huga neytenda með aðgerðum og háttsemi sem er fyllilega lögmæt og eðlileg. Það liggur í eðli samkeppninnar að ekki gengur öllum jafnvel að mæta þörfum viðskiptavina og neytenda og hlutdeild fyrirtækja á markaði breytist eðlilega í samræmi við slíkt. Fyrirhuguð heimild til íhlutunar í aðstæður sem raskað getur samkeppni er ekki takmörkuð á neinn hátt né veitir frumvarpið neina leiðsögn um við hvaða aðstæður nákvæmlega kemur til greina að henni verði beitt, hvaða sjónarmiðum skuli beitt við slíkt mat eða annað. Galopin og matskennd heimild af þessu tagi þar sem ofurtrú er lögð á óskeikulleika stjórnvalds og þar sem útilokað er að gera sér grein fyrir því, með lestri lagatextans, hvenær beitt verður er alls ekki í anda þess réttaröryggis og þeirrar festu sem ríkja þarf um eignarréttindi manna eins og þau eru vernduð í stjórnarskrá.“
Mest lesið Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Fleiri fréttir Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“ Mótmæla hvalveiðum Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Bergmál, biðlistar og bongóblíða Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Þrjár alvarlegar líkamsárásir til rannsóknar: „Puttabrotinn á Sjallanum“ Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Sjá meira
Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“