Leiksskólakennarar: Látum ekki börnin borga kreppuna 24. febrúar 2011 16:05
Stjórn Félags leikskólakennara hefur sent frá sér ályktun þar sem þungum áhyggjum er lýst af þróun leiksskólastarfs í landinu vegna niðurskurðar. Stjórnin varar eindregið við því að haldið verði áfram á þeirri braut. „Leikskólakennarar og leikskólastjórnendur hafa af útsjónarsemi og með velferð barna að leiðarljósi velt hverjum steini í rekstrarumhverfi leikskólanna í hagræðingarskyni undanfarin ár. Nú er hins vegar svo komið að víðast hvar hefur verið skorið inn að beini í rekstri leikskólanna og útlit er fyrir að skólarnir geti ekki með nokkru móti sinnt lögboðnu hlutverki sínu komi til frekari niðurskurðar," segir í ályktuninni. Þá gagnrýnir stjórnin einnig harðlega þær hugmyndir sem fram hafa komið að undanförnu um sameiningar tveggja eða fleiri leikskóla eða samrekstur leik- og grunnskóla „með það eitt að markmiði að spara stjórnunarkostnað skólanna. Leikskólastjórar eru faglegir leiðtogar í leikskólum þar sem víðast hvar sárvantar leikskólakennara til starfa. Þessar hugmyndir eru því aðför að leikskólanum sem fyrsta skólastiginu í menntakerfinu og í hrópandi ósamræmi við nýlega löggjöf um leikskóla og þá framtíðarsýn sem þar er sett fram." Stjórnin segist vita mæta vel hversu bág fjárhagsstaða margra sveitarfélaga landsins sé um þessar mundir og að víða sé nauðsynlegt að draga úr kostnaði. „Í því árferði sem nú ríkir er hins vegar mikilvægara en nokkru sinni að standa vörð um velferð og öryggi barna. Höfum hugfast að börn eiga aðeins eina æsku og ekki er hægt að bæta þeim upp það sem þau fara á mis við síðar. Látum ekki börnin borga kreppuna."
Mest lesið Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu Innlent Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Erlent Fleiri fréttir Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Sjá meira