Verja 300 milljónum í viðhald og atvinnuátaksverkefni 24. febrúar 2011 16:56 Dagur B. Eggertsson er formaður Borgarráðs.
Borgarráð samþykkti í morgun að verja 150 milljónum króna til atvinnuátaksverkefna í samvinnu við Vinnumálastofnun. Þá verður einnig varið 150 milljónum í sérstakt átaksverkefni í viðhaldi bygginga og endurgerð gamalla húsa. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að margt bendi til þess að atvinnu- og efnahagslíf sé að taka við sér eftir bankahrunið. „Þó má búast við að afmarkaður hópur þeirra sem lengst hafa verið atvinnulausir, fari að falla út af bótum og óska eftir fjárhagsaðstoð sveitarfélagsins. Reykjavíkurborg vill draga úr atvinnuleysi, einkum langtímaatvinnuleysi, með því m.a. að ráða atvinnulausa í átaksverkefni af margvíslegu tagi. Hundrað og fimmtíu milljónum verður varið til verkefna í þágu ungs fólks, til virkniverkefna fyrir fólk á fjárhagsaðstoð, til fólks með takmarkaða starfsgetu (fötlun) og til nýsköpunarsjóðsverkefna," segir í tilkynningunni. Eins og fyrr segir, verða 150 milljónum varið í sérstakt átaksverkefni sem felst í viðhaldi og endurgerð gamalla húsa. „Verkefnið verður unnið í nánu samstarfi við Vinnumálastofnun og er gert ráð fyrir að það verði boðið út til verktaka sem ráði til sín starfsmenn af atvinnuleysisskrá. Það fyrirkomulag er talið heppilegra og auka líkurnar á því að fólk sé ráðið áfram hjá viðkomandi fyrirtæki." Þá verður ráðinn sérstakur verkefnisstjóri til að vera tengiliður borgarinnar við Vinnumálastofnun og Atvinnuleysistryggingastjóð. „ Jafnframt mun hann aðstoða og taka við umsóknum frá fagsviðum um störf við átaksverkefni og taka ákvörðun með mannauðsstjóra Reykjavíkurborgar um afgreiðslu erinda í samræmi við viðmið borgarráðs. Aðgerðahópur borgarráðs um fjármál Reykjavíkurborgar gerir tillögur til borgarráðs um nýtingu fjármunanna en verkefnisstjóri og mannauðsstjóri sjá um útfærslu og nánari framkvæmd," segir ennfremur í tilkynningunni.
Mest lesið Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi Innlent Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Innlent Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum Innlent „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Innlent Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Erlent Bandaríkjamenn skjóta á skip sem hugðist leggja við bryggju á Kharg-eyju Erlent Jafnvel brotist inn þegar fólk er heima Innlent Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Innlent Fleiri fréttir Lengja opnunartíma í Salalaug Ár liðið frá því síðast gaus á Reykjanesi Jafnvel brotist inn þegar fólk er heima Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Ekki öll jafn spennt fyrir boðuðu samfélagsmiðlabanni Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum „Þetta setti allt úr skorðum fyrir okkur“ Lögreglan rannsakar enn eitt innbrotið í borginni Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll og á heiðum Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Kvöldfréttir Sýnar í heild sinni Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Vilja reisa 140 stúdentaíbúðir á Kársnesi Leigubílstjóri stunginn af farþega Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Skora á borgaryfirvöld að taka innbrotafaraldurinn föstum tökum Heilbrigðisnefndir verða lagðar niður Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Veita helmingsafslátt af leigunni Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Sjá meira