Vilja rækta ávaxtatré á Íslandi 25. febrúar 2011 10:27
Í dag verður undirritað samkomulag milli Garðyrkjufélags Íslands og Landbúnaðarháskóla Íslands um prófun á ræktun á norðlægum yrkjum af ávaxtatrjám við íslenskar aðstæður með það fyrir augum að í framtíðinni verði hægt að leiðbeina um val og ræktunaraðferðir. „Verkefnið fór af stað í kjölfar fræðsluerinda sem Jón Þ. Guðmundsson, garðyrkjufræðingur hefur flutt að undanförnu á vegum Garðyrkjufélagsins víða um land. Jón byggir þar á eigin reynslu og Sæmundar Guðmundssonar, áhugamanns sem reynt hefur eplarækt um nokkurt skeið og búsettur er á Hellu,“ segir í tilkynningu frá Garðyrkjufélagi Íslands og Landbúnaðarháskólanum. Þar segir að um 160 félagar í Garðyrkjufélaginu hafi nú ákveðið að taka þátt í verkefninu og prófa yrki af eplatrjám, perutrjám, plómum og kirsiberjum við breytileg skilyrði um allt land. Landbúnaðarháskólinn hefur faglega umsjón með framkvæmd prófana, veitir ráðgjöf um ræktunina og tekur við upplýsingum um árangurinn hjá ræktendum. „Stefnt er að því að prófanir fari fram sem víðast á landinu hjá aðilum sem líklegir eru til að annast ræktunina af alúð. Um 40 manns í öllum landshlutum taka þátt í kjarna verkefnisins og skuldbinda sig til að gefa reglulegar skýrslur samkvæmt forsögn frá LbhÍ um lifun, þroska og þrif trjánna og uppskeru þegar þar að kemur. Hinir 120 verða tiltækir með einfaldari skýrslugerð og viðbótarreynslu eftir því sem þörf gerist.“ „Meðal atriða sem kanna þarf eru samspil yrkja við jarðveg og staðbundið veðurfar og skjól á ræktunarstað, svo og ræktunartækni og umhirða, m.a. undirbúningur jarðvegs, áburðargjöf og tæknilegar aðferðir til að tryggja blómgun, frjóvgun og uppskerumagn. Arflægir eiginleikar og uppskerutími ávaxta er mjög breytilegur eftir tegundum og yrkjum.“ Yfir 130 yrki verða prófuð og eru þau flest ættuð frá Finnlandi, Rússlandi og Eystrasaltslöndunum og byggja mörg á gamalli hefð kynbóta í þessum löndum. „Sum þeirra hafa verið í sölu hjá garðplöntustöðvum hér á landi til þessa og lofar reynslan góðu. Trén sem notuð verða til verkefnisins eru eins árs gömul og því mikilvægt að þau fái góða umhirðu í byrjun og undirbúningur gróðursetningar sé vandaður. Ljóst er að íslenskur jarðvegur er líklega jafn erfiður í ræktun ávaxtatrjáa eins og veðrátta, skjólleysi og harðgerði sjálfra trjánna. Þess vegna hefst átakið formlega í dag með því að þátttakendunum 40 í kjarna verkefnisins er boðið að taka þátt í námsstefnu sem aðstandendur verkefnisins skipuleggja. Námstefnan fer fram í húsakynnum Landbúnaðarháskóla Íslands á Keldnaholti.“ Á vegum Garðyrkjufélagsins hefur nú verið stofnaður sérstakur klúbbur um ávaxtarækt. Allir sem eru félagar í Garðyrkjufélagi Íslands geta gerst meðlimir í ávaxtaræktarklúbbnum.
Mest lesið Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Erlent Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Erlent Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Innlent Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Erlent Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Innlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Innlent Fleiri fréttir Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Sjá meira