Tími einkarekinna meðferðarheimila liðinn Jón Hákon Halldórsson skrifar 25. febrúar 2011 10:52 Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndastofu, segir að skýrlsan sé um margt lærdómsrík.
Það er ekki tilefni til þess að vera bjartsýnn á framhald á rekstri einkarekinna meðferðarheimila, segir Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu. Þetta fullyrðir hann eftir að hafa kynnt sér skýrslu Ríkisendurskoðunar um rekstur meðferðarheimila á liðnum árum. Skýrslan var birt í gær „Það kemur til af margvíslegum ástæðum. Árbótarmálið er eitt þeirra. Líka þau sjónarmið sem eru viðruð viðvíkjandi Torfastaði og Götusmiðjuna. svo og afstaða Ríkisendurskoðunar viðvíkjandi það að það eigi að setja reglur um svo margt sem lítur að samningum sem ég held að geti ekki gengið upp í framkvæmd," segir Bragi. Hann segir að grundvallarhugmyndin að baki þjónustusamningum byggi á samningsfrelsi og með því að reglugera samningsfrelsið með þeim hætti sem lagt sé til grundvallar í umfjöllun skýrslunnar sé í raun búið að afnema samningafrelsið. Bragi bendir jafnframt á að pólitísk afskipti séu gjarnan í málum einkareknu meðferðarheimilanna. „Þetta tvennt held ég að geri það að verkum að ég er mjög svartsýnn á að það verði um frekari tilraunir að ræða," segir Bragi. Hann tekur þó skýrt fram að það sé ráðherra að ákveða endanlega hvernig staðið er að þessum málum. Barnaverndarstofa geti hins vegar veitt leiðsögn og haft sínar skoðanir á málunum.Niðurstaðan varðandi Árbót kom ekki á óvart Stutt er síðan að nýtt meðferðarheimili var opnað á vegum Barnaverndarstofu að Geldingalæk. Ákveðið var að hafa það heimili ríkisrekið í stað þess að semja við einkaaðila um rekstur þess. En þá standa eftir tvö einkarekin meðferðarheimili. „Ég held að það verði svona ákveðin óvissa um rekstrarform þeirra í framtíðinni en auðvitað stöndum við við þá samninga sem hafa verið gerðir," segir Bragi. Ríkisendurskoðun komst að þeirri niðurstöðu í skýrslunni sem birt var í gær að málefnaleg rök hafi skort fyrir 30 milljón króna uppgjörsgreiðslu til rekstraraðila meðferðarheimilisins Árbótar í Aðaldal. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og Árni Páll Árnason þáverandi félagsmálaráðherra sömdu um greiðslurnar gegn vilja Barnaverndarstofu. „Það er ekkert í því sem kemur mér á óvart. Það er í samræmi við þau sjónarmið sem Barnaverndastofa hélt fram í málinu," segir Bragi, sem telur að úttektin í heild sé gagnleg og að mörgu leyti lærdómsrík.
Mest lesið Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Innlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum Innlent Brenndu rangt lík Erlent Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Innlent Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Innlent Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Erlent Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Innlent Fleiri fréttir Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Sjá meira