Jóhanna: Þingmenn flytja frumvarp um stjórnlagaráð 25. febrúar 2011 13:46
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að þingsályktunartillaga um skipun 25 manna í stjórnlagaráð verði flutt af þingmönnum á Alþingi en ekki sem frumvarp ríkisstjórnarinnar. Það hafi aldrei staðið til. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra lýsti því yfir í morgun að hann væri andvígur þessari leið. Jóhanna segir að Ögmundur muni þó ekki greiða atkvæði gegn tillögunni. Jóhanna benti á að loknum ríkisstjórnarfundi að mikill meirihluti nefndarinnar sem falið var að klára stjórnlagaþingsmálið hafi lagt til að þessi leið yrði farin, að þeir sem náðu kosningu til stjórnlagaþings verði skipaðir í ráðið. Fari svo að einhver þeirra vilji ekki taka þátt í vinnunni verður leitað til þeirra sem næstir voru inn í kosningunni. Jóhanna segir að komið hafi til greina að kjósa að nýju á stjórnlagaþing. „En það eru ýmsir sem telja að það sé ekki skynsamlegt að blanda henni inn í kosningar um Icesave þannig að þetta er niðurstaða og ég tel hana vel ásættanlega." Aðspurð segist Jóhanna ekki telja að með þessu sé verið að fara á svig við dóm Hæstaréttar, sem ógilti kosninguna. „Við fengum þetta verkefni í fangið eftir að hæstiréttur ógilti kosninguna og það er auðvitað verkefni að leysa það. Það er búið að fullnusta dóminn með því að ógilda kosningu þessara einstaklinga," segir Jóhanna og bætir við að væntanlega verði flutt frumvarp samhliða tillögunni um að afnema lögin um stjórnlagaþing og að þannig verði dómur Hæstaréttar fullnustaður. „Það hefur enginn véfengt niðurstöðuna og við erum bara að ganga til verka, miðað við það sem við stóðum frammi fyrir." Jóhanna var einnig spurð hvort ekki væri óheppilegt að ríkisstjórnin skuli ekki vera samstíga í málinu í ljósi afstöðu Ögmundar. „Ögmundur hefur sagt sína skoðun í þessu máli. Hann mun ekki greiða atkvæði á móti þessari tillögu ef hún kemur fram á Alþingi þó að hann vilji ekki standa að henni. Enda hefur það ekki staðið til að það verði ríkisstjórnin sem flytti þetta mál heldur hefur verið rætt um að þetta verði þingmannatillaga." Jóhanna segir að verið sé að skoða hvort þeir þingmenn sem sátu í nefndinni beri tillöguna upp og mögulega einhverjir fleiri.
Mest lesið Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Erlent Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Erlent Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Innlent Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Erlent Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Innlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Innlent Fleiri fréttir Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Sjá meira