Bæjarbúar hafðir að leiksoppum 26. febrúar 2011 12:06 Flateyri, þar sem fyrirtækið Eyraroddi er starfrækt.
Formaður íbúasamtaka Önundarfjarðar furðar sig á vinnubrögðum Byggðastofnunar en stjórn Byggðastofnunar ákvað í gær að rifta samningum við Lotnu. Hann segir ákvörðun byggðastofnunar ljótan leik, bæjarbúar á Flateyri hafi verið hafðir að leiksoppum. Gleði íbúa á Flateyri snerist upp í andhverfu sína þegar í ljós kom að ekkert yrði úr áformum Lotnu um fiskvinnslu í þorpinu. Stjórn Byggðastofnunar kom saman í gær og ákvað að samþykkja ekki kaup Lotnu á eignum úr þrotabúi Eyrarodda. Fiskvinnsluvélar voru komnar í gang og þorskarnir á færibandinu færðust nær, þegar fréttirnar dundu yfir. „Við erum leiksoppur manna sem eru að höndla þarna um þetta þrotabú Eyrarodda. Maður veltir því fyrir sér hvort þessi skiptastjóri sé hæfur til að fara með búið," segir Guðmundur Björgvinsson, formaður íbúasamtaka Önundarfjarðar, Þá segir hann það rannsóknarefni hvernig staðið var að málum. „Þeir Lotnumenn eru hafðir að fíflum. (...) og Byggðastofnun og skiptastjóri vogi sér að fara svona með fólk, þetta er ljótur leikur sem þessir menn hafa gert af sér," segir Guðmundur. Anna Kristín Gunnarsdóttir, stjórnarformaður Byggðastofnunar, hefur sagt ákvörðun stofnunarinnar tengjast viðskiptasögu eigenda Lotnu sem meðal annars snúa að brotum á fiskveiðilöggjöf. Í fréttum stöðvar 2 í gær sagði Sigurður Aðalsteinsson, einn stjórnenda Lotnu, að það lægi fyrir samþykki Byggðastofnunar um að Lotna myndi yfirtaka skuldir Eyrarodda og benti á samning því til stuðnings. Þar stendur því orð gegn orði og á meðan ríkir aftur óvissa á Flateyri um framtíð þorpsins.
Mest lesið Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Innlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 Innlent Fleiri fréttir Sjósundsmaður tilkynntur til lögreglu „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Árekstur við Seljalandsfoss Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“ Mótmæla hvalveiðum Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Bergmál, biðlistar og bongóblíða Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Þrjár alvarlegar líkamsárásir til rannsóknar: „Puttabrotinn á Sjallanum“ Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Sjá meira
Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“