Innlent

359 nýir bílar nýskráðir hér á landi á þessu ári

Mynd/ Valgarður.
Mynd/ Valgarður.
Þrjú hundruð fimmtíu og níu nýjar bifreiðar voru nýskráðar hér á landi fyrstu tvo mánuði þessa árs samkvæmt tölum umferðarstofu.

Þetta er mikil aukning frá sama tímabili í fyrra en þá voru tvö hundruð og tólf nýjar bifreiðar nýskráðar.

Bílamarkaðurinn hefur verið í mikilli lægð undanfarin tvö ár. Rétt rúmlega þrjú þúsund og þrjú hundruð nýjar bifreiðar voru nýskráðar hér á landi á síðasta ári samanborið við rúmlega tíu þúsund árið 2008.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×