Skotveiðimenn segja Svandísi hafa svikið sig Jón Hákon Halldórsson skrifar 28. febrúar 2011 21:13 Svandís Svavarsdóttir er umhverfisráðherra. Mynd/ Valli.
Stjórn Skotveiðifélags Íslands harmar þá ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra að ætla að samþykkja verndar og stjórnunaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs án breytinga. Benda skotveiðimenn á að áætlunin sé gerð án aðkomu SKOTVÍS. Þeim hafi ekki á neinu stigi málsins verið boðin aðkoma að undirbúningsferlinu eins og skýrt sé kveðið á um í lögum um þjóðgarðinn. Auk þess sé farið á svig við stjórnsýslulög, t.d. með takmörkunum sem gangi gegn meðalhófsreglu stjórnsýslulaga. í ályktun frá stjórn Skotvís segist stjórnin harma að fyrirheit um samráð hafi verið svikin og spyr hvort þetta sé forsmekkurinn að því sem koma skal þegar fjalla á um mál sem snúa að náttúruvernd. „Stjórn Skotvís hefur ítrekað bent á annmarka í ferlinu og forsendur veiðitakmarkanna og gefið kost á því að ræða tillögurnar efnislega. Hvorki stjórn þjóðgarðsins né ráðherra hafa sýnt því áhuga. Þrátt fyrir niðurstöðu ráðherra, þá lítur stjórn SKOTVÍS svo á að umhverfisráðherra hafi með yfirlýsingu sinni viðurkennt misbrestina í ferlinu með því að bæta fyrir mistökin og taka upp samráð varðandi samgöngur innan þjóðgarðsins, en slíkt samráð stendur skotveiðimönnum ekki til boða. Eðlilegt er að málefni skotveiðimanna, s.s. er snúa að veiðistjórnun séu sett í sama farveg, því annars mun ekki ríkja almenn sátt um Vatnajökulsþjóðgarð,“ segir í ályktun SKOTVÍS.
Mest lesið Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent Vance þreifar fyrir sér í Sviss Erlent Fleiri fréttir „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Þrjár alvarlegar líkamsárásir til rannsóknar: „Puttabrotinn á Sjallanum“ Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Sjá meira