Attac samtökin krefjast þess að forsetinn vísi Icesave til þjóðarinnar 18. febrúar 2011 13:39
Attac samtökin á Íslandi krefjast þess að forseti Íslands vísi Icesave samningnum til þjóðarinnar og tryggi með því lágmarkslýðræði. Í yfirlýsingu frá samtökunum segir að yfirstjórnendur Landsbankans hafi getað í mannfjandsamlegu kerfi fjármálaauðvalds og að áeggjan alþjóðlegra matsfyrirtækja opnað Icesave reikninga til að breikka fjármögnunargrundvöll sinn. „Íslenskur almenningur hefur ekkert haft með málið að gera og ber enga ábyrgð á þessu sköpunarverki fjármálafyrirtækja, aflandseyjarinnar City of London og ríkisvalds sem þjónar alþjóðaauðvaldinu.“ Þá segir að Attac á Íslandi hafni öllum samningum og krefst þess að Icesave verði rannsakað sem sakamál. „Einnig krefjumst við þess að öll gögn málsins verði gerð opinber og að þáttur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins verði rannsakaður sérstaklega. Við fordæmum ólýðræðislega og ógagnsæja meðferð íslenskra valdhafa á málinu. Framferði ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar gengur þvert á yfirlýsta stefnu ríkisstjórnarflokkanna um heiðarleika og lýðræðislega stjórnarhætti.“ Krafan um ríkisábyrgð á Icesave er íþyngjandi afturvirk lagasetning á íslenskan almenning að mati samtakanna. „Sömu aðilar og krefjast þess nú að skuldafjötrar séu lagðir á alþýðu landsins telja ekki koma til greina að afturvirk lög verði sett á fjársafnseigendur.“ „Baráttan gegn Icesave samningnum er hluti af alþjóðlegri baráttu almennings gegn því að kostnaðinum af kerfiskreppum fjármagnsins sé ævinlega velt yfir á þá sem enga ábyrgð bera,“ segir einnig. „Íslandsdeild Attacsamtakanna fylkir liði með alþýðu heimsins, sem nú rís upp í hverju landi á fætur öðru til að bylta af sér oki misskiptingar hins kapítalíska kerfis og krefst frelsis, efnhagslegra og félagslegra mannréttinda og síðast en ekki síst lýðræðis,“ segir ennfremur og að lokum: „Félagar, sækjum fram sameinuð og kveikjum elda byltingar.“
Mest lesið Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Innlent Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Innlent Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Innlent „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Innlent „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Innlent Spændi upp mosann á krossara Innlent „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Innlent Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól Innlent Rússar virðast hafa litlar áhyggjur af hótunum Trump Erlent Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Innlent Fleiri fréttir „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Ræðukóngur Alþingis tekinn tali og varað við bikblæðingum á þjóðvegunum Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Tæpur fjórðungur umræðutímans fór í veiðigjöld Þyrlan kölluð út að sækja veikan farþega á skemmtiferðakipi „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Spændi upp mosann á krossara Netið sló út í miðborginni og Hlíðunum Bræður „moka inn“ á límónaðisölu og egg spælt á bíl Sögulegt þing, geðrof eftir meðferð og bongóblíða Dópsalar handteknir sem reyndust dvelja ólöglega á Íslandi Stjórnarandstaðan sakar forseta um alvarlegan trúnaðarbrest Mótmæltu komu „spilltrar“ der Leyen Hvetja fólk til að fara sparlega með vatn Rak landganginn í flugvélina og gerði gat Þagnarbindindi í ræðustól Alþingis Veiðigjaldafrumvarpið samþykkt „Ísland er með öruggustu löndum í heimi“ Aðalsprautan í Pussy Riot fær íslenskan ríkisborgararétt Sjá meira