Bubbi á nærbuxunum biður Heiðar Má afsökunar 26. febrúar 2011 13:14 Bubbi hefur beðið Heiðar Má afsökunar á að hafa haldið því fram að hann hafi tekið stöðu gegn krónunni.
Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens hefur beðið fjárfestinn Heiðar Má Guðjónsson opinberlega afsökunar á pistli sem hann skrifaði á pressuna fyrir nokkru síðan. Pistillinn bar yfirskriftina „Krónuníðingar" en þar fjallaði Bubbi um meinta stöðutöku Heiðars gegn krónunni og vitnaði þar í blaðið DV. Pistill Bubba var lagður fram í málsgögnum Heiðars Más í meiðyrðamáli sem hann hefur höfðað gegn ritstjórum og fréttastjóra DV en málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Í nýja pistlinum hans Bubba segist hann meðal annars taka til baka setninguna: „Líkur benda til þess að Heiðar Már hafi tekið stöðu gegn krónunni eins og margir aðrir bankar og Lífeyrssjóðir." „Við skulum samt hafa í huga að lýsingar DV á þínum viðskiptum voru ekki fagrar og hafi þær verið réttar, stend ég við hvert orð. En það skal alveg vera á hreinu að sé svo ekki, bið ég þig auðmjúkur afsökunar." Þá segist Bubbi skrifa pistilinn á nærbuxunum einum saman. „Af auðmýkt og einlægni bið ég þig afsökunar ef ég hef sært þitt viðkvæma vitsmunalíf og raskað svefnró þinni. Ég skrifa þennan pistil á fjórum fótum eingöngu klæddur í gamlar Boss nærbuxur til að undirstrika auðmýkt mína," skrifar hann. Og Bubbi vill ekki málsókn út af pistlinum. „Að þessu sögðu bið ég þig að þyrma mér gegn mögulegri lögsókn því ég er lélegur áhugafjárfestir sem á lítið af aur, en hins vegar fimm yndisleg börn, tvo gítara og skrítinn kött. Ég vona þú takir þessa afsökunarbeiðni góða og gilda," segir hann að lokum.
Mest lesið Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu Innlent Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Erlent Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Innlent Fleiri fréttir Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Sjá meira