Svínaflensan kemur þegar líður á vetur 9. október 2010 05:30 Sóttvarnalæknir hvetur alla til að láta bólusetja sig með hefðbundnu bóluefni. Komi slæmur svínainfúensufaraldur eigi fólk utan áhættuhópa að láta bólusetja sig með bóluefni gegn þeirri flensu. „
Það má heita nokkuð víst að svínaflensan sé að taka völdin og að það verði hún sem kemur í vetur.“ Þetta segir Haraldur Briem sóttvarnalæknir. Senn verður boðið upp á hefðbundna flensusprautu fyrir veturinn. „Við sjáum hver þróunin hefur verið á suðurhveli jarðar,“ útskýrir Haraldur. „Þar hefur svínaflensan haldið sig. En nú fer að vora þar og vetur að koma hjá okkur. Svínaflensan fylgir þeim breytingum og færir sig yfir á norðurhvelið. Hún hefur verið áberandi í Ástralíu, Nýja-Sjálandi og Suður-Ameríku. Við vitum ekki hvort gömlu stofnanir verða undir í flensufaraldri eða hvort þeir verða með í bland, þannig að bóluefnið sem verður í boði nú inniheldur bæði mótefnavaka fyrir þá og einnig fyrir svínaflensu.“ Rætt hefur verið um hugsanlegar aukaverkanir af bóluefni gegn svínaflensu, svo sem svokallaða drómasýki eða svefnsýki. Spurður um hvernig þeir eigi að haga málum sem vilji bólusetningu gegn gömlu flensustofnunum en ekki svínaflensu af einhverjum sökum segir Haraldur það erfitt um vik. „Það verður ekki til neitt bóluefni sem ekki er með vaka fyrir svínaflensu,“ segir hann. „Þetta bóluefni sem notað var síðastliðinn vetur, einungis gegn svínaflensu, er með ónæmisglæði til að efla ónæmisvarnir. Menn hafa velt því fyrir sér hvort hann skipti einhverju máli varðandi aukaverkanir. Við teljum svo ekki vera.“ Haraldur segir að til séu í landinu um hundrað þúsund skammtar af bóluefni gegn svínaflensu. „Við eigum þarna varabirgðir fyrir þá sem eru utan áhættuhópa, það er fólk undir sextugu, án undirliggjandi sjúkdóma. Ef faraldurinn í vetur verður slæmur þá munum við bjóða upp á slíka bólusetningu fyrir það fólk.“ Haraldur segir að verði þetta bóluefni ekki nýtt núna eða fram á árið 2012 þá verði ekki hægt að geyma það lengur. Fyrirsjáanlegt sé að ekki verði hægt að nota allar þær birgðir sem til eru, en verðmæti þeirra nemi um hunrdað milljónum króna. „Það má horfa á þessar birgðir eins og tryggingagjald. Maður vonar að það kvikni ekki í húsinu, en við eigum þessa tryggingu ef illa fer. Ég hvet alla, einkum þó fólk í áhættuhópum til að láta bólusetja sig með því bóluefni sem boðið verður nú upp á í árlegu bólusetningunni. Ef við fáum slæman svínainflúensufaraldur mun ég hvetja hvern einasta mann, sem ekki hefur verið bólusettur, til þess að láta af því verða núna.“ jss@frettabladid.is
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Sjá meira