Lilja: Gylfi hefur staðið í vegi fyrir aðgerðum 21. júní 2010 12:22 Lilja Mósesdóttir.
Viðskiptaráðherra hefur staðið í vegi fyrir aðgerðum í þágu skuldsettra heimila segir formaður viðskiptanefndar sem harmar aðgerðarleysi stjórnvalda. Hún segir að samfélagið muni loga í lögsóknum ef einstaklingar verði látnir um að greiða úr ágreiningi. Það muni seinka endurreisninni. Lilja Mósesdóttir er formaður viðskiptanefndar, efnahags og skattanefndar. Hún sagði í viðtali í Bítinu á Bylgjunni á morgun að stjórnvöld yrðu að grípa til almennra aðgerða gegn skuldavanda íslenskra heimila. Dómar hæstaréttar í síðustu viku sýndu það. Hún segist óska þeim sem tóku þessi lán til hamingju með dómana en á sama tíma harmar hún aðgerðarleysi stjórnvalda sem hún segir að hafi staðið yfir í 18 mánuði með miklu hugarangri fyrir hlutaðeigandi. Lilja varar við því að ef einstaklingar verði látnir um um að leysa úr ágreiningi vegna myntkörfulánasamninga, verði Íslendingar á botni hagsveiflunnar í nokkur ár til viðbótar. Hér á landi muni allt loga í lögsóknum og endurreisnin dragast á langinn. Hún bendir á að Joseph Stieglitz og aðrir sérfræðingar hafi varað við því að forðast ætti að leysa skuldavanda heimilanna í gegnum dómstóla. Og hún gagnrýndi Gylfa Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra fyrir aðgerðarleysi og sagði að hann hafi ekki síst staðið í vegi fyrir því að gripið yrði til almennra aðgerða til að taka á skuldavanda heimilanna. „Mér finnst hann þurfa að útskýra hvers vegna hann sér allt í einu ávinninginn af því að fólk fái leiðréttingu á þessari gengishækkun sem varð á skuldum, ávinning sem við vorum búin að margbenda á."
Mest lesið Mótmælendur lokuðu veginum að Bláa lóninu Innlent Tekur U-beygju og kallar stuðningsmenn sína aumingja Erlent Átta börn fædd úr erfðaefni þriggja einstaklinga til að fyrirbyggja sjúkdóma Erlent Grunur um að maður hafi kveikt í húsi í Reykjanesbæ Innlent Von der Leyen dásamaði útsýnið á Reykjavíkurflugvelli Innlent Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Innlent Félag eldri borgara vildi bygginguna nær lóðarmörkunum Innlent Dregið úr virkni en virðist enn gjósa í um tíu gígum Innlent Aðalsvið Tomorrowland brann til kaldra kola Erlent Segir ferðaþjónustunni mismunað og efnir til mótmæla Innlent Fleiri fréttir Flutti tæp þrjú kíló af kókaíni til landsins og fær tvö ár Ætlar ekki að þegja til að láta fordómafullu fólki líða betur Strandveiðar færast frá Viðreisn til Flokks fólksins Myndir: Flugu til Þórsmerkur og Grindavíkur Mótmælendur lokuðu veginum að Bláa lóninu „Annars lítur þetta ekki mjög vel út fyrir þær“ „Sýnið nú kjark og dug og gerið þetta almennilega“ Grunur um að maður hafi kveikt í húsi í Reykjanesbæ Staðan á gosinu og óánægja með lokanir í Grindavík Segir ferðaþjónustunni mismunað og efnir til mótmæla Félag eldri borgara vildi bygginguna nær lóðarmörkunum Von der Leyen dásamaði útsýnið á Reykjavíkurflugvelli Landlæknir hlynnt því að banna ljósabekki Loftgæði mælast óholl á Akureyri Dregið úr virkni en virðist enn gjósa í um tíu gígum Met í verðtryggðum lánveitingum lífeyrissjóðanna Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Opnaði listasýningu aldargamall og segir verkin verða eins og börnin sín Blámóða vofir yfir Vestfjörðum og Skagafirði Dettifossi kippt í lag og seinkar um sólarhring Grindvíkingum hleypt inn, varnargarðar hækkaðir og Bláa lónið opnar Vill fyrst og fremst fá að njóta ævikvöldsins í friði „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Kort: Sprungan lengist til norðurs Strandveiðar bannaðar á morgun Gos í beinni, ósáttir Grindvíkingar og íbúum drekkt í steypu Alvarleg árás með hamri í Reykjavík Sýknaður af ákæru um að nauðga konu í afmælisveislu hennar Varað við fölsuðum töflum sem innihalda hættulega efnablöndu Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Sjá meira