Innlent

Afstaðan liggur senn fyrir

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Slökkviliðsmenn að störfum. Mynd/ Hari.
Slökkviliðsmenn að störfum. Mynd/ Hari.
Atkvæðagreiðslu um nýgerðan kjarasamning Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og Launanefndar sveitafélaga lýkur á hádegi á morgun. Atkvæðin verða talin strax á eftir og Sverrir Björn Björnsson, formaður Landssambandsins, segir að niðurstaðan verði kynnt strax á eftir eða á þriðjudaginn.

Samningar slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna við viðsemjendur sína náðust á föstudaginn fyrir viku en slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn höfðu þá verið samningslausir í um það bil ár. Verkfallsaðgerðum var þá frestað, en verði samningurinn felldur má búast við að þeim verði haldið áfram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×