Innlent

Kveikja bál á Austurvelli - myndir

Fyrsta bálið var heldur smátt
Fyrsta bálið var heldur smátt Myndir: GRV

Nokkrir mótmælendur tóku sig saman og tendruðu lítið bál við Austurvöll fyrir skemmstu. Lögreglulið var enn vel mannað við Alþingishúsið eftir mótmælin og bar lögreglumenn fljótt að bálinu og slökktu það.











Lögreglan slökkti eldinn fljótt

Mótmælendurnir létu það lítið á sig fá og kveiktu skjótt annan eld.

Eftir því sem fréttastofa kemst næst eru um fjögur hundruð manns enn á Austurvelli en á annað þúsund voru þar saman komin þegar Alþingi var sett fyrr í dag.









Mótmælendur kveiktu þá annan eld
Mótmælin hafa að mestu farið friðsamlega fram. Svo virðist þó sem hiti sé tekinn að færast í leikana með tilheyrandi báli.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×