Innlent

Grasrót VG leitar að svörum vegna skuldavandans

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Sólveig Anna Jónsdóttir er formaður VG í Reykjavík. Mynd/ Anton Brink.
Sólveig Anna Jónsdóttir er formaður VG í Reykjavík. Mynd/ Anton Brink.
Markmiðið er náttúrlega augljóslega að fá einhverjar raunverulega upplýsingar um það hvernig staðan er hjá ríkisstjórninni, segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður VG í Reykjavík, um málfund sem haldinn verður á fimmtudaginn.

Á fundinum mun Ögmundur Jónasson, dómsmálaráðherra með meiru, útskýra afstöðu ríkisstjórnarinnar til þeirra hugmynda sem hafa komið upp um lausnir á skuldavanda heimilanna. Auk hans halda þau Marínó G. Njálsson, stjórnarmaður í Hagsmunasamtökum heimilanna, og Lilja Mósesdóttir, þingmaður VG, framsögu á fundinum. Sólveig segir að á fundinum muni Marínó útskýra fyrir fundargestum þær hugmyndir sem Hagsmunasamtök heimilanna hafa um lausnir á skuldavanda heimilanna og Lilja Mósesdóttir muni útskýra svokallað lyklafrumvarp sem hún hefur talað fyrir.

Aðspurð um afstöðu sína til lyklafrumvarps Lilju Mósesdóttir segir Sólveig að hún treysti Lilju sem þingmanni mjög vel. „Mér finnst það sem ég hef séð koma frá Lilju Mósesdóttur vera vel gert og vel unnið. Ég treysti henni sem þingmanni mjög vel," segir Sólveig. Það sama eigi við það sem hún hafi séð koma frá Hagsmunasamtökum heimilanna. „Það virðist vera hjá henni og Hagsmunasamtökum heimilanna raunveruleg löngun fyrir því að reyna að bæta stöðu almennings," segir Sólveig.

Fundurinn er haldinn á Vestugötu 7 á fimmtudag klukkan átta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×