Á þriðja hundrað framboð til stjórnlagaþings Erla Hlynsdóttir skrifar 18. október 2010 10:29 Krafa um stjórnlagaþing var hávær í búsáhaldabyltingunni
Um 160 manns höfðu á föstudag skilað inn framboðsgögnum til landskjörstjórnar vegna framboðs til stjórnlagaþings. Ritari landskjörstjórnar segir fjölda framboða hafa bæst við í morgun og því ljóst að framboðin verða á þriðja hundrað, hið minnsta. Framboðsfrestur rennur út klukkan tólf í dag og þurfa frambjóðendur að koma framboðsgögnum til skila fyrir þann tíma. Póststimpill verður ekki tekinn gildur heldur þurfa gögn að hafa borist fyrir hádegi. Þeir sem enn eiga eftir að skila inn gögnum er bent á að tekið er við þeim í viðbyggingunni Skála við Alþingishúsið. Enginn frestur verður gefinn á skilum. Þórhallur Vilhjálmsson, ritari landskjörstjórnar, segir stjórnlagaþingið án fordæma og undirbúningur fyrir það því sömuleiðis fordæmalaus. Blaðamaður sagðist hafa fengið veður af því að sumir frambjóðendur hefðu áhyggjur af því að listi yfir meðmælendur væri á fimmtán blaðsíðum en nafn frambjóðenda kæmi aðeins fram á þeirri fyrstu. Þannig teldu sumir mögulegt að eftir á gæti einhver haldið því fram að hann hefði mælt með öðrum en raun bar vitni þar sem nafn frambjóðenda væri ekki á fjórtán síðum af þeim fimmtán sem meðmælendalistinn er. Þórhallur hafði aldrei heyrt af þessum áhyggjum þegar blaðamaður bar þær undir hann og segist ekki búast við að þetta verði vandamál. Hann bendir á að frambjóðandi beri ábyrgð á því að þær upplýsingar sem hann veitir meðmælendum séu réttar og þau gögn sem hann skilar inn séu á ábyggileg. Hver frambjóðandi þarf að skila inn nöfnum minnst þrjátíu meðmælenda en hver meðmælandi má aðeins mæla með einum frambjóðanda. Þórhallur segist hafa fengið örfá mál inn á sitt borð þar sem fólk segist óvart hafa mælt með fleiri en einum frambjóðanda og hann í kjölfarið leiðbeint fólki til að ganga þannig frá framboðsgögnum til að framboð sé í samræmi við reglur.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Fleiri fréttir „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Sjá meira