Leit að öðru en álveri bar ekki árangur 18. október 2010 12:26 Reinhard Reynisson er formaður Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga.
Verkefnisstjórn um nýtingu orkunnar í Þingeyjarsýslum hefur skilað iðnaðarráðherra sömu niðurstöðu og hún gerði í vor; að tvö verkefni séu áhugaverð og raunhæf; álver á vegum Alcoa og álver á vegum kínverska fyrirtækisins Bosai. Ósk ríkisstjórnarinnar í maí, um að leitað yrði betur að einhverju öðru, breytti engu. Eftir að ríkisstjórnin hafnaði því í fyrrahaust að endurnýja viljayfirlýsingu við Alcoa um álver á Bakka setti iðnaðarráðherra sérstaka verkefnisstjórn heimamanna og stjórnvalda á laggirnar til að skoða aðra möguleika. Hún flokkaði þá kosti sem væru í boði í A, B og C flokk, og komust tvö verkefni í A-flokk, sem áhugaverð og raunhæf, annarsvegar álver Alcoa og hins vegar álver á vegum Bosai, sem er kínverskt einkafyrirtæki. Fjögur verkefni voru sett í B-flokk sem áhugaverð en þyrftu ítarlegri skoðun. Þau voru í áliðnaði, gagnaver, málmblendi og efna- og eldsneytisframleiðsla. Loks voru sex verkefni sett í C-flokk sem þyrftu að þroskast betur. Ríkisstjórnin var hins vegar ekki tilbúin í vor út frá þessari niðurstöðu að velja annaðhvort álfyrirtækið úr A-flokknum heldur gaf fyrirmæli um að leitað yrðu betur að einhverju öðru og átti niðurstaða að liggja fyrir þann 1. október. Verkefnisstjórnin hefur nú lokið leit sinni og skilaði iðnaðarráðherra niðurstöðu fyrir helgi. Hún er sú að staðan sé óbreytt; að það séu aðeins tvö verkefni sem fari í A-flokk, sem áhugaverð og raunhæf; annarsvegar álver Alcoa og hins vegar kínverska álverið. Reinhard Reynisson, fomaður Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga, sem sæti á í verkefnisstjórninni, segir að sum hinna verkefnanna séu háð því að álver eða sambærileg stóriðja rísi, sem geti staðið undir kostnaði við uppbygginga nauðsynlegra grunnstoða, eins og háspennulína. Sveitarstjóri Norðurþings, Bergur Elías Ágústsson, sagði í fréttum Stöðvar 2 í síðustu viku að boltinn væri nú hjá stjórnvöldum og vildi að gengið yrði til samninga við stóran orkukaupenda innan fárra vikna.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Fleiri fréttir „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Sjá meira