Segir yfirstjórn Orkuveitunnar ekki fara með rétt mál 18. október 2010 23:23 Kjartan Magnússon óskaði eftir fundi með trúnaðarmönnum í dag.
Tillögur starfsmanna Orkuveitunnar um hagræðingu með skertu starfshlutfalli í stað fjöldauppsagna hafa ekki verið kynntar fyrir eða ræddar af stjórn fyrirtækisins eins og skilja má af umræddri yfirlýsingu samkvæmt yfirlýsingu sem borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins sendi frá sér. Í yfirlýsingu Sjálfstæðisflokksins segir: „Eðlilegt hefði verið að tillögur starfsmanna um þetta efni hefðu verið kynntar stjórninni um leið og þær komu fram enda eru til skrifleg gögn um þær. Ýmsar leiðir hafa verið ræddar í stjórninni og þar með talin sú leið að skerða starfshlutfall, hinsvegar hefur aldrei komið fram á stjórnarfundum að starfsmenn hafi lagt fram tillögu þess efnis. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins hefur nú kallað sérstaklega eftir því að umræddar hugmyndir starfsmanna verði kynntar stjórninni. Í yfirlýsingu yfirstjórnar OR er fullyrt að fordæmalaust sé að einstakir stjórnarmenn boði til funda með starfsmönnum. Það er rangt. Mörg dæmi eru um að einstakir stjórnarmenn boði starfsmenn eða trúnaðarmenn á sinn fund eða hitti þá að máli. Í sumar boðaði núverandi stjórnarformaður t.d. til fundar með starfsmönnum og tóku aðrir stjórnarmenn virkan þátt í fundinum. Aukafundur stjórnar OR, sem fulltrúi Sjálfstæðisflokksins óskaði eftir, verður haldinn á miðvikudag. Óskað hefeur verið eftir því að þar verði farið yfir hugmyndir starfsmanna um skert starfshlutfall í fyrirtækinu gegn því að ekki verði gripið til fjöldauppsagna en þær hugmyndir hafa enn ekki verið kynntar fyrir stjórninni. Að þessum upplýsingum fengnum, taki stjórn afstöðu til tillögu forstjóra um málið og/eða annarra tillagna, sem fram kunna að koma. Rétt er að benda á að allar ákvarðanir um fjöldauppsagnir í fyrirtækjum eru í eðli sínu mikils háttar, sem eðlilegt er að viðkomandi stjórn þekki til hlítar og taki afstöðu til og ábyrgð á, áður en þær koma til framkvæmda." Eftirfarandi bókun var lögð fram af fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í stjórn Orkuveitunnar sl. föstudag: Mörg islensk fyrirtæki hafa á undanförnum árum fækkað starfsfólki verulega án þess að gripið hafi verið til hópuppsagna, t.d. með sérstökum eftirlaunasamningum, 10% skerðingu á starfshlutfalli, og tilboði um starfslok til þeirra sem skammt eiga eftir í töku eftirlauna. Að undanförnu hafa slíkar hugmyndir verið ræddar á stjórnarfundum og vel heppnuð dæmi úr atvinnulífinu verið nefnd í því sambandi. Ég harma að meirihluti stjórnar skuli ekki vilja skoða slík úrræði til þrautar. Óskað er eindregið eftir þvi að stjórnendur skoði af alvöru slíkar aðgerðir í því skyni að koma í veg fyrir fjöldauppsagnir eða að minnsta kosti lágmarka fjölda þeirra starfsmanna, sem til stendur að segja upp.
Tengdar fréttir Kjartan vill aukafund í OR um tillögur starfsmanna Kjartan Magnússon, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur óskaði í dag eftir aukafundi í stjórn fyrirtækisins vegna yfirvofandi fjöldauppsagna. 18. október 2010 16:08 Segir stjórn OR hafa skoðað niðurskurðartillögur Hugmyndir um hagræðingu með skertu hlutfalli starfsfólks Orkuveitu Reykjavíkur (OR) hafa verið ræddar í stjórn fyrirtækisins sem og á tugum samráðsfunda samkvæmt áréttingu frá upplýsingafulltrúa Orkuveitunnar, Eiríki Hjálmarssyni. 18. október 2010 17:39 Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum Sjá meira
Kjartan vill aukafund í OR um tillögur starfsmanna Kjartan Magnússon, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur óskaði í dag eftir aukafundi í stjórn fyrirtækisins vegna yfirvofandi fjöldauppsagna. 18. október 2010 16:08
Segir stjórn OR hafa skoðað niðurskurðartillögur Hugmyndir um hagræðingu með skertu hlutfalli starfsfólks Orkuveitu Reykjavíkur (OR) hafa verið ræddar í stjórn fyrirtækisins sem og á tugum samráðsfunda samkvæmt áréttingu frá upplýsingafulltrúa Orkuveitunnar, Eiríki Hjálmarssyni. 18. október 2010 17:39