Niðurskurður í raunvísindum hamlar nýsköpun Jón Hákon Halldórsson skrifar 18. október 2010 12:15 Gert er ráð fyrir miklum niðurskurði á fjárlögum til raunvísindadeildar Háskóla Íslands.
Svo gæti farið að námsframboð í raunvísindagreinum yrði takmarkað verulega nái hugmyndir um niðurskurð í háskólum fram að ganga. Í ályktun frá Raunvísindadeild Háskóla Íslands kemur fram að samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár sé fyrirhuguð skerðing nemendaframlaga til háskóla vegna náms í raunvísindum, verk- og tæknifræði um 12,2% og náms í stærðfræði og tölvunarfræði um 9,6%. Fyrirhuguð skerðing vegna náms í viðskiptafræði, lögfræði og hugvísindum sé hins vegar einungis 0,6%. Hugsanlega dregið úr námsframboði Guðmundur G. Haraldsson, forseti Raunvísindadeildar Háskóla Íslands, segir að til að bregðast við þessu hafi þær hugmyndir verið ræddar að taka nemendur í fámennum greinum inn á tveggja ára fresti í stað árlega. „Það er ekki góð staða að við þurfum að taka nemendur inn annað hvert ár. Þá myndum við bara missa nemendur utan og þeir kæmu ekkert aftur," segir Guðmundur. Þetta eigi við um eðlisfræði, efnafræði, tölvunarfræði og stærðfræði. Guðmundur segir að staðan sé sérstaklega erfið í stærðfræði og tölvunarfræði.Nýsköpun hamlað Guðmundur segir að tillagan um að bregðast við fjárhagsvandanum með minna námsframboði sé enn á umræðu stig. Ekkert sé farið að útfæra hana. „Við megum síst við því að takmarka aðgengi nema að þessu námi," segir Guðmundur. Hann nefnir dæmi um nokkur fyrirtæki sem byggja starfsemi sína á raunvísindaþekkingu. „CCP er mjög gott dæmi sem veltir milljörðum hérna og er hugbúnaðartengt. Svo eru náttúrlega öll þessi ágætu sprotafyrirtæki sem verið er að fjalla um. Svo eru þessi rótgrónu hátæknifyritæki eins og Marel og Össur og svona mætti telja lengi," segir Guðmundur. Hann nefnir Actavis líka sem dæmi. Lokaákvörðunin hjá skólunum Ályktun kennara við Raunvísindadeild var samþykkt á miðvikudag í síðustu viku og send menntamálaráðherra og þingmönnum í morgun. Ákvarðanir um fjárveitingar til einstakra deilda innan háskólanna byggir á reiknilíkani sem var fyrst kynnt til sögunnar árið 1999. Í grein sem Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra skrifaði í Fréttablaðið á laugardag segir hún að reiknilíkanið sé fyrst og fremst vinnutæki sem ætlað er að leiðbeina um hvernig fjárveitingum er skipt milli háskóla. Skólunum sé svo í sjálfvald sett hvernig þeir deili fjármagninu innan sinna raða. Nám á sviði félags- og mannvísinda, guðfræði, lögfræði og annað sambærilegt nám, hafi lengi verið talið vanmetið í líkaninu.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Fleiri fréttir „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Sjá meira