Segir meintar hótanir slitnar úr samhengi 18. október 2010 06:00 Bjarni fullyrðir að Steinunn og fulltrúi rannsóknarfyrirtækisins Kroll hafi saumað allt of harkalega að sér í óformlegri yfirheyrslu í þessu herbergi.Fréttablaðið / gva
Fulltrúi í slitastjórn Glitnis segir meintar hótanir formannsins, Steinunnar Guðbjartsdóttur, í garð starfsmanns Íslandsbanka, sem sagt er frá í kvörtun sem send hefur verið Héraðsdómi Reykjavíkur, vera slitnar úr samhengi. Þær gefi ekki tilefni til afsagnar slitastjórnarinnar. Lögmaður Bjarna Jóhannessonar, fyrrverandi viðskiptastjóra Glitnis og núverandi starfsmanns Íslandsbanka, sendi á miðvikudaginn síðasta formlega kvörtun til Héraðsdóms Reykjavíkur, þar sem hann fullyrðir að Steinunn hafi hótað Bjarna í yfirheyrslu hjá slitastjórninni. Lögmaður Bjarna segir hann hafa mætt áður í hljóðritaða yfirheyrslu sem hafi að mestu gengið út á að lítillækka hann og gera hann totryggilegan. Sú síðari, nú í júlí, hafi hins vegar verið kynnt sem óformleg og hafi því ekki verið hljóðrituð. Þar hafi verið ýjað að því að hann hefði eitthvað að fela og það gæti haft afleiðingar fyrir hann að vera ekki samvinnuþýður. Enn væri hægt að bæta fólki inn í stefnur slitastjórnarinnar. Bjarni sleit að lokum fundinum vegna þessa og hefur nú farið fram á að slitastjórninni verði skipt út. Hann vildi ekkert tjá sig um málið þegar Fréttablaðið ræddi við hann í gær. Bjarni kemur við sögu í stefnu slitastjórnarinnar á hendur Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, Pálma Haraldssyni, Lárusi Welding og þremur fyrrverandi starfsmönnum Glitnis í svokölluðu Aurum-máli. Hann var einn viðtakenda tölvuskeytis frá Jóni Ásgeiri þar sem Jón Ásgeir virðist, sem stjórnarformaður, reyna að hafa áhrif á lánveitingar bankans og segir að verði honum ekki hlýtt sé kannski réttast að hann verði starfandi stjórnarformaður. Ekki náðist í Steinunni Guðbjartsdóttur í gær. Hinn fulltrúinn í slitastjórninni, Páll Eiríksson, segist ekki hafa séð kvörtunina og geti því lítið tjáð sig um efni hennar. Honum finnist þó mjög vafasamt að vitna til orða sem féllu á fundunum án þess að samhengisins sé gætt. „Menn púsla því saman sem þeim hentar,“ segir hann. Hann segir að ef óskað verði eftir því muni slitastjórnin mæta í héraðsdóm og útskýra sína hlið málsins. „Það er ekkert að fela í því,“ segir Páll, sem telur ekki tilefni fyrir hann og Steinunni til að segja sig úr slitastjórninni. Lárus Welding gerði fyrr á árinu athugasemdir við starfshætti slitastjórnarinnar við skýrslutökur. Spurður hvort fleiri kvartanir hafi borist segir Páll að þessi sé sú eina. „En menn hafa svo sem ekki allir borið sig allt of vel þegar þeir eru spurðir út í ákveðin atriði sem snerta rekstur bankans fyrir hrun,“ segir hann. stigur@frettabladid.is
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Fleiri fréttir „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Sjá meira