Milljarði minna í leigubætur 18. október 2010 05:45 Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði. „
Rúmlega 80 prósent þeirra sem þiggja húsaleigubætur, almennar og sérstakar, hafa tvær milljónir eða minna á ári í árstekjur. Þetta er því verulega vanhugsað útspil gagnvart þeim hópi sem á hvað erfiðast um þessar mundir," segir Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði. „Það skýtur skökku við að skerða þessi framlög á sama tíma og ríkisstjórnin talar um að hjálpa þessum sama hópi með öllum tiltækum ráðum." Á sama tíma og sveitarstjórnarmenn lýsa áhyggjum af hröðum vexti í útgreiðslu húsaleigubóta er gert ráð fyrir því að framlag ríkisins dragist saman um ríflega tuttugu prósent frá því sem greitt er til kerfisins í ár. Skerðingin samkvæmt fjárlagafrumvarpinu nemur 600 milljónum króna en útlit er fyrir að framlög til húsaleigubótakerfisins lækki um milljarð þar sem sveitarfélögin verða að draga samsvarandi úr mótframlagi sínu. Samkomulag milli ríkisins og sveitarfélaga um verulega hækkun bótanna og aukna þátttöku ríkisins í fjármögnun rann út í vor. Í fjárlagafrumvarpinu er gengið út frá því sem aðhaldsráðstöfun að í nýju samkomulagi verði gerðar breytingar á kerfinu sem dragi úr útgjöldum sem nemur áætluðum umframútgjöldum ársins 2010. Aldís segir nauðsynlegt að endurskoða og breyta meginforsendum kerfisins í heild sinni miðað við þessar forsendur. Það sé blóðugt því kerfið er vel heppnað eins og það er, að hennar mati. „Á sama tíma er verið að selja ofan af fólki og ræða um að Íbúðalánasjóður fari að leigja út húsnæði. Þegar stefnt er að því að koma á fót virkum og góðum leigumarkaði er ekki rétta leiðin að ráðast á einn hornstein hans sem eru húsaleigubæturnar," segir Aldís. Greiðslu húsaleigubóta segir hún hafa aukist til muna í hennar sveitarfélagi og efast ekki um að það sé eins víðar. „Það er mikil þörf og þetta er í raun sorglegt á tímum þegar við ættum miklu frekar að létta undir með fólki sem vill eða þarf að leigja sér húsnæði." - shá
Mest lesið „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Innlent Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Innlent Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Innlent Fleiri fréttir Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám Sjá meira